Dagana 23.-26. október
Vetrarfrí leik- og grunnskólanna er í vikunni og nóg í boði fyrir fjölskyldur í Reykjanesbæ sem vilja nýta dagana til samveru, útivistar og afþreyingar. Hér fyrir neðan getið þið séð opnunartíma og viðburði sem eru á dagskrá á bókasöfnum, söfnum og sundlaugum bæjarins yfir fríið en einnig er til dæmis tilvalið að ganga meðfram strandlengjunni, njóta haustsins og kíkja á Skessuna í hellinum.
Sundlaugar Reykjanesbæjar
Vatnaveröld
Virkir dagar: 06:30–21:30
Helgar: 09:00–18:00
Stapalaug
Virkir dagar: 15:00–21:30
Helgar: 09:00–18:30
Bókasöfn Reykjanesbæjar
Á bókasöfnunum verður líf og fjör í vetrarfríinu með fjölskylduvænum viðburðum.
Aðalsafn
Virkir dagar: 09:00–18:00
Helgar: 10:00–17:00
Stapasafn
Virkir dagar: 08:00–18:00
Laugardagur: 10:00–14:00
Viðburðir:
- Vetrarfrísföndur í Stapasafni– föstudaginn 23. október kl. 13:00–15:00. Skemmtilegur viðburður fyrir fjölskyldur til að setjast niður, spjalla og föndra saman. Munið að taka með ykkur krukkur! Allt annað efni verður á staðnum.
- Viltu lesa fyrir ferfættan vin? Lesið fyrir hund í vetrarfríinu á Aðalsafni – sunnudaginn 25. október kl 11:30–12:30. Börnin geta komið með eigin bók eða valið sér lesefni á safninu. Skráning fer fram hér.

Duus Safnahús
Duus Safnahús, þar sem meðal annars eru Listasafn Reykjanesbæjar og Byggðasafn Reykjanesbæjar, verða opin alla helgina.
Þar geta gestir skoðað fjölbreyttar sýningar og tekið þátt í skapandi listsmiðjum fyrir alla aldurshópa.
Opnunartímar:
Þriðjudagur–sunnudagur: 12:00–17:00
Mánudagur: lokað
Viðburðir:
- Bílar og hafmeyjur - fjölskyldusmiðja í vetrarfríinu – laugardaginn 24. október og sunnudag 25. október kl. 12–16 í Gryfjunni í Duus Safnahúsum. Börn og fullorðnir geta búið til sínar eigin hafmeyjur og bíla, innblásin af sýningunum Nína, okkar kærasta Nína og Litið í baksýnisspegilinn.

Opið hús í íþróttaakademíunni
Tilvalin fjölskyldustund í vetrarfríinu þar sem börnin geta hreyft sig, leikið sér og leyst út smá orku. Aðgangseyrir: 1.500 kr. Hver forráðamaður ber ábyrgð á sínu barni/börnum.
Opnunartímar:
Föstudagurinn 23. október
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 0–3 ára (salur uppi)
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 4–8 ára
Kl. 11:15–12:15 → Fyrir 9–12 ára
Mánudagurinn 26. október
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 0–3 ára (salur uppi)
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 4–8 ára
Kl. 11:15–12:15 → Fyrir 9–12 ára
Fjörheimar – dagskrá fyrir 8.–10. bekk
Fjörheimar Akur
Opið föstudaginn 23. október kl 19:00-22:00 – Fössarafjör
Fjörheimar Háaleiti
Opið föstudaginn 23. október kl 19:00-21:40 – Bragðarefsgerð

Sólbrekkuskógur, Trúðaskógur og Njarðvíkurskógar
Frábærir staðir fyrir fjölskyldugöngu í vetrarfríinu, smá ævintýri og fullt af fersku lofti.






