Vilhjálmur er fæddur á Sauðárkróki árið 1983. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra árið 2004, útskrifaðist úr Lögregluskóla ríkisins árið 2006 og lauk síðar bæði BA-prófi og meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Vilhjálmur starfaði um árabil sem lögreglumaður, meðal annars hjá lögreglunni á Suðurnesjum, áður en hann tók sæti á Alþingi fyrir Suðurkjördæmi árið 2013. Á Alþingi hefur hann gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum og setið í nefndum á sviði stjórnskipunar-, efnahags-, samgöngu-, umhverfis- og velferðarmála.
Vilhjálmur er kvæntur Sigurlaugu Pétursdóttur og eiga þau þrjá syni.
Starfsfólk Reykjanesbæjar býður Vilhjálm velkominn til starfa og óskar honum velfarnaðar í nýju hlutverki.


