Nýtt skammtíma hjúkrunarheimili var opnað á Hlévangi í Reykjanesbæ í dag, 20. október, með 24 hjúkrunarrýmum.
Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) hafa unnið saman að undirbúningi opnunarinnar, sem miðar að því að mæta þörf fyrir aukin hjúkrunarrými. Við opnunina fluttu ávörp Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS).
Léttir álagi af bráðamóttöku Landspítala
Skammtímahjúkrunarrýmin eru ætluð einstaklingum sem lokið hafa meðferð og hafa fengið færni- og heilsumat, en bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili. Dvölin er tímabundin og tryggir þeim viðeigandi aðbúnað og þjónustu. Jafnframt léttir úrræðið á álagi á deildum Landspítalans og skapar aukið svigrúm fyrir þá sem þurfa á sjúkrahúsþjónustu að halda.
Húsnæðið er í eigu Reykjanesbæjar og hafa sveitarfélagið og félags- og húsnæðismálaráðuneytið gert með sér samning um leigu þess til tveggja ára, með möguleika á framlengingu. Heilbrigðisráðuneytið leggur til tæki og búnað og fjármagnar starfsemina, en Heilbrigðisstofnun Suðurnesja annast þjónustu og daglegan rekstur hjúkrunarheimilisins.
Áframhaldandi uppbygging hjúkrunarrýma í Reykjanesbæ
Uppbygging hjúkrunarrýma í Reykjanesbæ heldur áfram, en stefnt er að opnun nýs hjúkrunarheimilis á Ásbrú með 90 rýmum árið 2028. Það er ánægjulegt að sjá þann kraft sem er í samfélaginu.
