Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reykjanesbær minnist Gunnars Þórðarsonar

Í dag er flaggað í hálfa stöng við stofnanir Reykjanesbæjar í minningu Gunnars Þórðarsonar tónlistarmanns og tónskálds, sem lést 29. júlí síðastliðinn, 81 árs að aldri.

Gunnar skipar einstakan sess í íslenskri tónlistarsögu og tengsl hans við Keflavík voru sterk. Hann fluttist ungur til bæjarins og var í fararbroddi þeirrar miklu tónlistarvakningar sem þar varð á sjöunda áratugnum með Hljómum. Á löngum og farsælum ferli samdi hann fjölda laga sem hafa orðið órjúfanlegur hluti af íslenskri tónlistarsögu.

Gunnar var útnefndur bæjarlistamaður Keflavíkur árið 1992 og skipar þannig einnig sérstakan sess í menningarsögu Reykjanesbæjar.

Útför Gunnars fer fram frá Hallgrímskirkju í dag. Reykjanesbær vottar fjölskyldu hans og aðstandendum innilega samúð og þakkar Gunnari fyrir ómetanlegt framlag hans til íslenskrar tónlistar og menningarlífs.

Blessuð sé minning Gunnars Þórðarsonar.