Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reykjanesbær óskar Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar til hamingju með 30 ára afmælið

Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB) fagnar 30 ára afmæli á þessu ári, en bandalagið var stofnað 29. maí 1996. Reykjanesbær óskar bandalaginu, aðildarfélögum þess og öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem komið hafa að starfinu í gegnum árin innilega til hamingju með þennan merka áfanga.

Í dag eru 16 aðildarfélög innan bandalagsins sem standa fyrir fjölbreyttu íþróttastarfi fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Meginhlutverk ÍRB er að efla og skipuleggja íþróttastarfsemi í sveitarfélaginu, gæta sameiginlegra hagsmuna aðildarfélaganna og vera málsvari íþróttahreyfingarinnar gagnvart Reykjanesbæ og öðrum opinberum aðilum.

Sérstakur formannafundur var haldinn 14.október í golfskálanum við Hólmsvöll þar sem boðið var upp á afmæliskvöldverð í tilefni af þessum merku tímamótum. Á fundinum tóku til máls Rúnar Vífill Arnarson, formaður ÍRB, Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ, Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður Ungmennafélags Íslands (UMFÍ).

Mikilvæg tímamót urðu í sögu bandalagsins í mars 2026 þegar Guðni Erlendsson tók við sem fyrsti framkvæmdastjóri ÍRB. Ráðningin markaði nýjan kafla í starfsemi bandalagsins og styrkti enn frekar umgjörð íþróttastarfsins í Reykjanesbæ.

Reykjanesbær þakkar öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til uppbyggingar íþróttastarfs í bæjarfélaginu undanfarna þrjá áratugi. Starf íþróttahreyfingarinnar er ómetanlegur þáttur í samfélaginu og stuðlar að heilbrigði, samveru og auknum lífsgæðum íbúa á öllum aldri.

Reykjanesbær óskar Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar innilega til hamingju með 30 ára afmælið og farsældar í áframhaldandi starfi.