Beint í efni

Samstarf opnar nýjar leiðir fyrir óperulist í Reykjanesbæ

Suðurnesjafólk í öndvegi þegar Þjóðaróperan heimsótti Reykjanesbæ

Þjóðaróperan heimsótti Reykjanesbæ sunnudaginn 1. nóvember með opnunarviðburð sinn Undir sömu stjörnu í Hljómahöll. Viðburðurinn markaði jafnframt upphaf samstarfs Reykjanesbæjar og Þjóðaróperunnar en aðilar undirrituðu viljayfirlýsingu í tilefni heimsóknarinnar.

Markmiðið er að efla óperulist í sveitarfélaginu, auka aðgengi íbúa að listforminu og skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk á svæðinu. Meðal annars verður horft til þess að bjóða upp á óperusýningar í Reykjanesbæ, þróa fræðsluverkefni fyrir börn og ungmenni og skapa tækifæri fyrir tónlistarfólk til þátttöku í sýningum, vinnustofum og faglegu samstarfi.

Samstarfið verður unnið í nánu samráði við Óperufélagið Norðuróp og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og byggir á þeirri aðstöðu, þekkingu og öflugu tónlistarstarfi sem þegar er til staðar í sveitarfélaginu. Það er hugsað til þriggja ára og verður næstu skrefum fylgt eftir með samtali aðila um verkefni og tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar.

Tónlistarfólk á Suðurnesjum í sviðsljósinu

Á sýningunni Undir sömu stjörnu var Suðurnesjafólk svo sannarlega í öndvegi en Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og Norðuróp komu að viðburðinum með öflugum hætti.

Hljómsveit Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar lék undir stjórn Jóhanns Smára Sævarssonar, Hátíðarkór Norðuróps kom fram og gestasöngvari var Martyna Patrycja Gesella. Söngvarar Þjóðaróperunnar fluttu perlur úr óperusögunni og leikarar Þjóðleikhússins leiddu áhorfendur í gegnum dagskrána.

Viljayfirlýsingin var undirrituð af Vilhjálmi Árnasyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, Finni Bjarnasyni, óperustjóra Þjóðaróperunnar, Jóhanni Smára Sævarssyni, listrænum stjórnanda Óperufélagsins Norðuróps, og Haraldi Árna Haraldssyni, skólastjóra Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Samstarf opnar nýjar leiðir fyrir óperulist í Reykjanesbæ - Reykjanesbær