Bókasafn Reykjanesbæjar tekur þátt í alþjóðlega verkefninu Vika 17, sem tileinkað er heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Dagskráin hefst af krafti í dag, þriðjudaginn 14. apríl, með fræðslu um lausnir gegn matarsóun og hvernig við getum sparað peninga í leiðinni.
Þema Viku 17 árið 2026 er markmið 2 – Ekkert hungur. Í tilefni þess er boðið upp á fjölbreytta og áhugaverða dagskrá í Aðalsafni og Stapasafni dagana 14.–26. apríl. Boðið verður upp á allt frá hagnýtri fræðslu og umræðum til einfaldra aðgerða á borð við endurnýtingar, ræktunar og umhverfisverndar. Þannig gefst íbúum tækifæri til að sjá hvernig litlar aðgerðir í daglegu lífi geta haft raunveruleg áhrif.
Bókasafnið er í eðli sínu vettvangur sjálfbærni þar sem deilihagkerfið er í fyrirrúmi, en í þessari viku er gengið skrefinu lengra með þátttöku nærri 200 bókasafna í um 10 löndum.
Dagskrá í Aðalsafni:
- 14. apríl – Lausnir gegn matarsóun
- 19.–26. apríl – „Plokkum saman“: Plokkbingó fyrir alla fjölskylduna
- 20. apríl – Áhrifamáttur íslenskra lækningajurta
- 19.–26. apríl – Plöntuskiptimarkaður og Fræsafnið opnar
- 19.–26. apríl – Hvaðan kemur maturinn? Fræðsla og skemmtun fyrir gesti
Dagskrá í Stapasafni:
- 19.–26. apríl – Fataskiptimarkaður
- 19.–26. apríl – „Plokkum saman“: Plokkbingó
- 19.–26. apríl – Sýning á bókum tengdum umhverfisvernd og sjálfbærni
Allir geta tekið þátt í Viku 17 – hvort sem það er með því að mæta á viðburði, tileinka sér sjálfbærari lífsstíl eða einfaldlega glugga í bækur um umhverfismál sem stillt hefur verið upp í söfnunum.
Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á heimasíðu Bókasafns Reykjanesbæjar og á samfélagsmiðlum safnsins.

