Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Tímabundnar breytingar á umferð við Grænásveg

Á næstunni verður ráðist í tímabundnar breytingar á gatnakerfi við Grænásveg með það að markmiði að bæta umferðaröryggi og draga úr gegnumakstri um íbúðargötur. Breytingarnar voru samþykktar á fundi bæjarráðs í dag og verða framkvæmdar þegar undirbúningi þeirra er lokið.

Helstu breytingar eru:

  • Þrengt verður að hægri beygju af Njarðarbraut upp Grænásveg.
  • Vinstri beygja af Grænásvegi inn á Njarðarbraut verður bönnuð.
  • Gatnamót Bergáss og Grænásvegar verða lokuð fyrir akandi umferð.

Markmið breytinganna er að auka öryggi í hverfinu og draga úr umferð sem nýtir íbúðargötur sem hjáleið.

Breytingarnar eru tímabundnar og verður áhrif þeirra á umferðarflæði og umferðaröryggi metið áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið.