OPEN4SKILLS (Open Yourself for Career Skills) er tveggja ára Erasmus+ samstarfsverkefni þar sem samstarfsaðilar frá Íslandi, Litháen, Lettlandi og Spáni hafa unnið saman að því að styðja ungt fólk á aldrinum 14-21 árs við að kynnast eigin styrkleikum, efla færni sína og skoða náms- og starfsleiðir.
Á Íslandi taka Háaleitisskóli, Myllubakkaskóli og Fjörheimar þátt í verkefninu.
Verkefnið hefur verið umfangsmikið og mikil vinna hefur farið í rannsóknir, rýnihópa, þýðingar og samantektir. “Kannski er þó mikilvægasti afraksturinn sú hugsun sem liggur í gegnum allt verkefnið: að ungt fólk þurfi ekki að hafa öll svörin strax. Það þarf fyrst og fremst að fá tækifæri, tíma og verkfæri til að spyrja góðra spurninga, kynnast sjálfu sér, kanna möguleika og finna sitt eigið næsta skref.” segja Drífa Thorstensen og Dögg Var, kennarar í Háaleitiskóla.
Afraksturinn er nú orðinn að fjölbreyttum stafrænum vettvangi sem mun nýtast áfram í starfi með ungmennum. Framundan eru kynningar fyrir grunnskóla, námskeið fyrir starfsfólk og hlaðvarpsþættir með nemendum.
“Það sem stendur sérstaklega upp úr hjá okkur er samstarfið milli landanna og hversu mikilvægt það hefur verið að fá sjónarmið unga fólksins sjálfs inn í þróun verkefnisins. Þrátt fyrir ólík skólakerfi og aðstæður komu oft fram mjög svipaðar spurningar og áskoranir hjá ungmennum þegar kemur að framtíðinni, námi og störfum.” segja Drífa Thorstensen og Dögg Var, kennarar í Háaleitiskóla.
Reykjanesbær óskar þeim sem að verkefninu komu til hamingju með þennan glæsilega árangur og hvetjum öll til að kynna sér þau verkfæri og tækifæri sem OPEN4SKILLS hefur skapað.
Við hvetjum öll að kíkja á heimsíðuna Open4Skills

