Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Undir sömu stjörnu í Hljómahöll – Opnunarviðburður Óperunnar

Suðurnesjafólk í öndvegi

Nýstofnuð Ópera heimsækir Reykjanesbæ sunnudaginn 1. nóvember með opnunarviðburð sinn Undir sömu stjörnu. Sýningin fer fram í Hljómahöll kl. 16 og verður Suðurnesjafólk þar í öndvegi ásamt söngvurum Óperunnar og leikurum Þjóðleikhússins.

Undir sömu stjörnu er hluti af opnunardagskrá hinnar nýju Óperu, sem leggur áherslu á að starfsemin nái til landsins alls. Alls eru fimm sýningar á dagskrá víðs vegar um landið og hafa fyrstu tvær, á Akureyri og Eskifirði, verið uppseldar. Næst er komið að Reykjanesbæ áður en haldið verður áfram í Skálholt og loks í Þjóðleikhúsið.

Á sýningunni í Hljómahöll verður sérstök áhersla lögð á þátttöku tónlistarfólks úr nærumhverfinu og koma Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og Norðuróp með öflugum hætti að viðburðinum. Hljómsveit Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leikur undir stjórn Jóhanns Smára Sævarssonar, Hátíðarkór Norðuróps kemur fram og gestasöngvari er Martyna Patrycja Gesella.

Ástarstjarna yfir Hraundranga og kvöldstjarna Wagners

Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um „Ástarstjörnu yfir Hraundranga“ samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Skyldi það hafa verið sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja? Í þessari veglegu söngdagskrá er saga óperunnar rakin, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum. Söngvarar Óperunnar flytja okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar en leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna. Fróðleik og skemmtun er hér fléttað saman á léttleikandi hátt.

Söngvarar Óperunnar eru Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson. Leikarar Þjóðleikhússins eru Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason. Handrit og leikstjórn er í höndum Ólafs Egils Egilssonar og tónlistarstjóri verkefnisins er Richard Schwennicke.

Undir sömu stjörnu verður í Hljómahöll sunnudaginn 1. nóvember kl. 16.

Miðar eru seldir á vef Þjóðleikhússins.