Sjálfbærnivika Reykjanes jarðvangs er vettvangur fyrir skóla, sveitarfélög og fyrirtæki á svæðinu til að vekja athygli á einföldum og aðgengilegum leiðum til að auka sjálfbærni í daglegu lífi okkar allra.
Vorið 2024 efldi Reykjanes jarðvangur samstarf sitt við skóla á svæðinu með það að markmiði að styrkja tengslin við UNESCO-skólanetið. Í UNESCO-skólastarfi er meðal annars lögð áhersla á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, alþjóðadaga og viðburði sem vekja athygli á málefnum þeirra. Margir skólar vinna nú þegar að slíkum verkefnum og því er markmiðið fyrst og fremst að efla og formgera það góða starf sem þegar fer fram. Áherslur Grænfánaskóla og Heilsueflandi skóla falla sömuleiðis vel að verkefninu.
Í Reykjanesbæ hafa grunnskólarnir Háaleitisskóli, Heiðarskóli og Stapaskóli hlotið vottun sem UNESCO-skólar, ásamt leikskólunum Gimli og Holti. Þá hefur Fjölbrautaskóli Suðurnesja einnig fengið viðurkenningu sem UNESCO-skóli, en aðrir skólar á svæðinu vinna nú að umsóknum sínum.
“Sjálfbærnivika Reykjanes jarðvangs er eitt af þeim fjölmörgu verkefnum sem hafa sprottið upp úr auknu samstarfi jarðvangsins við skóla og fyrirtæki á svæðinu, með dyggum stuðningi frá sveitarfélögunum öllum, og tengist með beinum hætti inn í UNESCO skóla samstarfið” segir Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes UNESCO Global Geopark.
Sjálfbærnivikan hefur nú fest sig í sessi sem árlegur viðburður fyrstu vikuna í nóvember. Tímasetningin er engin tilviljun, því vikunni er ætlað að vera kærkomið mótvægi við aukna neyslu sem oft fylgir aðdraganda jóla. Þar með tekur hún einnig undir boðskapinn í átaki Landverndar, Nægjusömum nóvember, sem hvetur fólk til að staldra við, endurskoða neysluvenjur sínar og finna gleðina í því að eiga nóg.
En hvernig getum við öll tekið þátt?
Það þarf ekki að ráðast í stór verkefni til að leggja sitt af mörkum. Við getum til dæmis nýtt það sem við eigum nú þegar, minnkað matarsóun, gengið eða hjólað þegar færi gefst, valið fjölnota vörur í stað einnota og gefið hlutum framhaldslíf með viðgerðum, endurnýtingu eða endursölu.
Bókasafn Reykjanesbæjar
- Bókasöfnin eru sannkallaðar fjársjóðskistur þegar kemur að sjálfbærni.
- Þar er ekki aðeins hægt að fá bækur að láni heldur einnig púsl, spil, saumavélar og ýmislegt annað sem getur komið sér vel í daglegu lífi.
Að flokka þarf ekki að vera flókið
- Með einföldum venjum á heimilinu getum við öll lagt okkar af mörkum til að draga úr sóun og tryggja að meira af því sem við hendum nýtist aftur.
- Flokkun felst meðal annars í að flokka heimilisúrgang rétt og nýta grenndar- og söfnunarstöðvar.
Nýtum vistvæna ferðamáta
- Veljum hjól eða göngu í styttri ferðir.
- Nýtum hjóla- og göngustíga.
- Veljum almenningssamgöngur þegar kostur er.
Nýtum nærumhverfið
- Njótum útivistarsvæða, almenningsgarða og náttúrunnar í nærumhverfinu.
- Göngum vel um almenningssvæði, berum virðingu fyrir náttúrunni og skiljum ekki eftir rusl.
Við hvetjum öll til að taka þátt í Sjálfbærnivikunni, kynna sér fjölbreyttar leiðir til að efla sjálfbærni og deila góðum hugmyndum með öðrum.
Munum að sjálfbærni byrjar ekki á stórum ákvörðunum heldur oft á litlum skrefum í rétta átt.










