Beint í efni

Ungmennin vilja sjá hugmyndir verða að veruleika

Ungmennaráð Reykjanesbæjar fundaði með bæjarstjórn þriðjudaginn 3. nóvember þar sem ungmennin fluttu fjölbreytt og metnaðarfull erindi um málefni sem þeim eru hugleikin. Bæjarfulltrúar tóku afar vel í tillögurnar og hrósuðu ungmennunum sérstaklega fyrir málefnalega umræðu, raunhæfar hugmyndir og vandaðan undirbúning.

Ungmennin ræddu meðal annars mikilvægi góðrar andlegrar heilsu, jafnt aðgengi að félagsmiðstöðvum, bættrar íþróttaaðstöðu, öruggra gönguleiða og fjölbreyttra tækifæra til útivistar, menningar og félagslífs. Meðal tillagna voru úrbætur á lýsingu og aðgengi að göngustígum, fjölnota útivistarsvæði fyrir ungmenni, betra skipulag æfingatíma íþróttafélaga og aukið aðgengi að stuðnings- og geðheilbrigðisþjónustu. Einnig var vakin athygli á því sem vel hefur tekist í ungmennastarfi bæjarins, meðal annars vel heppnuðu Landsmóti Samfés sem haldið var í Reykjanesbæ fyrr á árinu og góðu samstarfi með umhverfis og skipulagssviði Reykjanesbæjar.

Rauður þráður í erindum ungmennanna var mikilvægi þess að hugmyndir þeirra og sjónarmið leiði til raunverulegra umbóta. Ungmennaráðið kallaði jafnframt eftir auknum stuðningi við starfsemi ráðsins, meðal annars með fjármagni til verkefna og því að vinnuframlag ungmennanna væri metið að verðleikum. 

Bæjarfulltrúar fagna auknu samtali

Bæjarfulltrúar lýstu yfir mikilli ánægju með frammistöðu ungmennanna og þökkuðu þeim fyrir vel ígrunduð erindi og mikilvægt framlag til umræðu um málefni sveitarfélagsins. Sérstaklega var hrósað fyrir hversu skýrar og raunhæfar tillögurnar voru og að margar þeirra væru vel framkvæmanlegar. 

Bæjarfulltrúar lögðu jafnframt áherslu á vilja sinn til áframhaldandi samtals og samstarfs við ungmennaráðið. Þau hvöttu ungmennin til að halda áfram að koma hugmyndum sínum á framfæri við ráð og nefndir sveitarfélagsins, þar sem hægt væri að ræða þær frekar og skoða möguleika á útfærslu og framkvæmd. 

Virkt samráð og spennandi verkefni fram undan

Ungmennaráðið lagði jafnframt fram sameiginlega yfirlýsingu þar sem bæjarstjórn, ráð, nefndir og starfsfólk sveitarfélagsins voru hvött til að leita reglulega eftir sjónarmiðum barna og ungmenna. Sérstök áhersla var lögð á að ungmenni fengju að taka þátt í samtalinu strax á undirbúningsstigi ákvarðana. 

Fram undan eru fjölbreytt verkefni hjá Ungmennaráði Reykjanesbæjar, meðal annars samráðsfundur með umhverfis- og skipulagssviði, barna- og ungmennaþing í mars 2027, endurskoðun á erindisbréfi og verklagi ráðsins og virk þátttaka í verkefninu Barnvænt sveitarfélag. 

Fundurinn endurspeglaði mikilvægi þess að börn og ungmenni hafi vettvang til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka virkan þátt í þróun samfélagsins. 

„Við erum ekki aðeins framtíð Reykjanesbæjar – við erum líka hluti af samfélaginu í dag og viljum hafa áhrif á það,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu Ungmennaráðsins.