Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Ungriff 2026 lokið í Reykjanesbæ

Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Ungriff lauk í gær, sunnudaginn 4. október 2026, og markar hátíðin upphaf nýs og spennandi samstarfs milli Ungriff og Reykjanesbæjar.

Sérstaklega er ánægjulegt að Bókasafn Reykjanesbæjar hafi tekið að sér að vera heimili Ungriff í Reykjanesbæ. Þar gafst fjölskyldum, börnum og ungmennum kostur á að njóta fjölbreyttrar dagskrár með vel völdum kvikmyndum frá ólíkum löndum og menningarheimum.

Reykjanesbær vill færa Ungriff og starfsfólki Bókasafns Reykjanesbæjar innilegar þakkir fyrir framúrskarandi samstarf og faglega framkvæmd. Jafnframt viljum við þakka öllum þeim sem nýttu sér ókeypis sýningar hátíðarinnar og tóku þátt í að gera þessa alþjóðlegu kvikmyndahátíð að eftirminnilegri upplifun.

Með þátttöku sinni hefur Reykjanesbær stutt við aðgengi barna og ungmenna að alþjóðlegri kvikmyndamenningu og menningarupplifun. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og nýrra tækifæra til að efla menningarlíf í sveitarfélaginu.

Takk fyrir samveruna á Ungriff 2026.