Reykjanesbær óskar eftir tilboði í verkið: Myllubakkaskóli, lóðarframkvæmdir samkvæmt lýsingu þessari og öðrum þeim gögnum, sem hér eru eftirtalin sbr. gr. 1.2.
Umsjónaraðili verðfyrirspurnar:
- Verkfræðistofan Efla
- Sími: 4126000
- Netfang: petur.jonsson@efla.is
- Vefsíða: www.efla.is
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef BIDCO / Reykjanesbæjar (undir flipanum opinber útboð) – frá kl. 14:00 þann 20.05.2026 . Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef BIDCO / Reykjanesbæjar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef BIDCO / Reykjanesbæjar eigi síðar en: Kl. 13:00 þann 02.06 2026.
