Landsmót Samfés fór fram í Reykjanesbæ um helgina og sóttu það rúmlega 450 ungmenni frá yfir 80 félagsmiðstöðvum víðs vegar af landinu. Frá hverri félagsmiðstöð komu að jafnaði fimm til sex ungmenni sem tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá helgarinnar.
"Viðburður af þessu tagi og þessari stærðargráðu verður ekki til í tómarúmi heldur krefst hann óteljandi klukkutíma í undirbúningi, skipulagi og svo í aðgerð á viðburðinum sjálfum. Starfsfólk Fjörheima á risa stórt hrós skilið fyrir aðkomu sína að þessum viðburði og standa sem stærsta og sterkasta stoðin í þeirri staðreynd að Landsmótið fór eins vel fram og það gerði." að sögn Valgeirs Þórs Jakobssonar, framkvæmdastjóra Samfés.
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri, setti mótið og bauð ungmennin velkomin. Meðal viðburða á föstudagskvöldinu var kosning í ungmennaráð Samfés þar sem kosið var um 22 sæti til eins til tveggja ára í tíu kjördæmum. Þá sá fráfarandi ungmennaráð um hina árlegu kvöldvöku sem skapaði mikla stemningu.
Laugardagurinn var helgaður fjölbreyttum smiðjum þar sem ungmennin fengu tækifæri til að prófa nýja hluti, afla sér þekkingar og taka þátt í umræðum. Meðal þess sem var í boði voru kynni af störfum lögreglunnar, nælugerð og fræðsla um fjármálalæsi. Fulltrúar Netvís tóku einnig þátt og ræddu við ungmennin um gervigreind og samfélagsmiðla.
Samhliða Landsmóti Samfés fór Landsmót lúðrasveita fram og voru mótin sameinuð með sameiginlegu balli í Hljómahöllinni á laugardagskvöldinu. Þar steig Herra Hnetusmjör á svið og hélt uppi fjörinu.
Á sunnudeginum lauk dagskránni með Landsþingi Samfés sem Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri setti einnig. Ungmennaráð Samfés hafði veg og vanda af skipulagningu þingsins og leiddi vinnu þátttakenda, sem skipt var í hópa til að ræða málefni ársins. Þema þingsins að þessu sinni var fjölbreytileiki. Á þinginu gafst ungmennunum tækifæri til að deila sjónarmiðum sínum og ræða framtíðarsýn sinnar kynslóðar.
"Við viljum þakka Reykjanesbæ kærlega fyrir að hafa boðið Samfés sveitarfélagið sitt og sinn starfskraft fram til þess að láta þennan viðburð verða að veruleika. Holtaskóli, Myllubakkaskóli og sundlaugin voru nýtt til fulls alla helgina." segir Valgeir Þór Jakobsson.
Nánar um Landsmót Samfés.


