Á kortavef Reykjanesbæjar er hægt að skoða margvíslegar landupplýsingar og kortatengd gögn um sveitarfélagið. Þar má meðal annars finna teikningar af mannvirkjum, skoða aðal- og deiliskipulag, sveitarfélagamörk, veitukerfi, lausar lóðir og ýmsar aðrar upplýsingar um skipulag og uppbyggingu bæjarins.
Kortavefurinn nýtist bæði íbúum, fyrirtækjum og þeim sem eru með framkvæmdir eða áform í sveitarfélaginu.