Reykjaneshöfn er þjónustufyrirtæki í eigu Reykjanesbæjar og rekur hafnir sveitarfélagsins. Hafnaraðstaðan samanstendur af smábátahöfninni í Gróf, Helguvíkurhöfn, Keflavíkurhöfn og Njarðvíkurhöfn.
Rekstur hafnarinnar byggir á uppbyggingu og viðhaldi hafnarmannvirkja til móttöku báta og skipa auk ýmissar þjónustu því tengdu, s.s. móttaka enda, sala á rafmagni, sala á köldu vatni og móttöku úrgangs. Einnig rekur Reykjaneshöfn þjónustu dráttarbáts og ísverksmiðju til framleiðslu á kæliís.
Daglegur opnunartími er frá kl. 08:00 til kl. 17:00 virka daga en starfsmenn á bakvöktum sinna útköllum á öðrum tímum. Þjónustusími hafnarinnar er 420 3224 og netfang hafnarinnar er reykjaneshofn@reykjaneshofn.is.
Nánari upplýsingar má finna á vef Reykjaneshafnar
