Reykjanesbær varð til við sameiningu sveitarfélaganna Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna 11. júní 1994. Sveitarfélagið er staðsett á vestanverðum Reykjanesskaganum, nær frá norðurmörkum Keflavíkur og út á Reykjanestá. Svæðið er um 145.000 hektarar. Reykjanesbær er fjórða stærsta sveitarfélag landsins með um 23.000 íbúa árið 2026. Íbúafjölgun hefur verið hröð á undanförnum árum og langt yfir landsmeðaltali. Á síðustu tíu árum hefur íbúum fjölgað um 54%.
Nálægðin við hafið hefur ávallt mótað söguna. Í Höfnum hafa verið rannsakaðar leifar bústaðar sem er frá elstu tíð og þykir varpa nýju ljósi á landnám Íslands. Í Keflavík hefur verið miðstöð verslunar á Suðurnesjum frá alda öðli. Mikilvægi staðarins markaðist fyrst og fremst af miklu framboði af fiski sem veiddist steinsnar frá landinu. Jarðirnar Innri- og Ytri-Njarðvík og jarðeignir í Hafnahreppi voru alla tíð eftirsóttar sökum nálægðar við fiskimiðin. Útgerð var með miklum blóma allt fram undir lok 20. aldar þegar kvótinn var að mestu seldur úr bæjarfélaginu. Hægt er að kynna sér þessa sögu í Duus Safnahúsum.
Í seinna stríði hóf Bandaríkjaher byggingu Keflavíkurflugvallar sem hefur verið í rekstri alla tíð síðan. Lengst af var flugvöllurinn rekinn í samvinnu við varnarliðið sem hafði aðsetur við flugvöllinn. Herstöðin var lögð niður árið 2006 eftir um hálfrar aldar starfsemi á vellinum. Þótt þessar miklu sviptingar hafi haft mikil áhrif á bæjarlífið þá hafa þær ekki dregið máttinn úr samfélaginu.
Í dag er aðaleinkenni Reykjanesbæjar fjölbreytni. Hér má finna mennta- og þjónustustofnanir, verslanir, hótel, fjölbreyttan iðnað og frumkvöðlafyrirtæki. Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein og gamla varnarsvæðið hefur orðið að nýju íbúðahverfi, Ásbrú. Þar er Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, ásamt frumkvöðlasetri og sprotafyrirtækjum. Sveitarfélagið hefur jafnframt staðið framarlega í íþrótta- og listgreinum og öflugt íþrótta- og menningarlíf hefur lengi verið mikilvægur hluti samfélagsins.
Reykjanesbær er innan Reykjanes jarðvangs sem er vottaður UNESCO jarðvangur. Slík svæði búa yfir merkilegum jarðminjum á heimsvísu sem samanlagt skýra frá mótun lands frá upphafi og áhrif jarðfræðinnar á þróunarsögu, menningu og lífríki svæðanna. Jarðvangar eru því áhugaverðir vegna fræðslugildis, fjölbreytilegrar náttúru og sjaldgæfra jarðminja. Flekaskil Norður-Ameríku og Evrasíu eru sýnileg á Reykjanesi og gerir svæðið einstakt á heimsvísu. Hægt er að ganga yfir flekaskilin á Brú milli heimsálfa, sem er einn af fjölmennustu ferðamannastöðum Reykjaness.
Keflavík
Keflavík á sér langa sögu sem verslunar- og útgerðarbær og hefur um aldir verið mikilvægur byggðarkjarni á Suðurnesjum. Nálægðin við sjóinn mótaði bæinn og hér byggðist upp öflugt samfélag í kringum verslun, sjávarútveg og þjónustu.
Á 20. öld óx Keflavík hratt, meðal annars með auknum umsvifum við Keflavíkurflugvöll. Bærinn fékk kaupstaðarréttindi árið 1949 og sameinaðist Njarðvík og Höfnum í Reykjanesbæ árið 1994. Í dag mætast gömul byggð, sjávarsaga og fjölbreytt mannlíf í hjarta Keflavíkur.
Njarðvík
Njarðvík á sér langa sögu sem sjálfstætt samfélag á Suðurnesjum. Sveitarfélagið varð sjálfstætt árið 1889 og þótt það hafi um tíma sameinast Keflavík varð Njarðvík aftur sjálfstætt sveitarfélag árið 1942.
Njarðvík óx jafnt og þétt á 20. öld og fékk kaupstaðarréttindi árið 1975. Árið 1994 sameinuðust Njarðvík, Keflavík og Hafnir í Reykjanesbæ. Í dag er Njarðvík fjölbreyttur bæjarkjarni þar sem gömul byggð og nýrri hverfi mynda mikilvægan hluta af samfélagi Reykjanesbæjar.
Hafnir
Hafnir byggðust upp í kringum öflugt útræði og sjósókn. Nafn byggðarinnar er dregið af stórbýlunum Sandhöfn og Kirkjuhöfn, sem nú eru komin í eyði.
Áður fyrr var byggðin fjölmenn og útgerð mikil, meðal annars á stórum bátum, allt fram undir aldamótin 1900. Hafnir urðu síðar hluti af Reykjanesbæ við sameiningu sveitarfélaganna árið 1994 og bera enn sterk einkenni þeirrar sögu sem mótaðist af nálægðinni við hafið.
Ásbrú
Ásbrú varð til á fyrrum varnarsvæði Bandaríkjahers við Keflavíkurflugvöll eftir að herinn yfirgaf svæðið árið 2006. Í kjölfarið hófst umfangsmikil umbreyting svæðisins með það að markmiði að færa það yfir í borgaraleg not og skapa þar ný tækifæri til búsetu, menntunar og atvinnu.
Síðan hefur Ásbrú þróast í fjölbreytt samfélag þar sem áhersla er lögð á nýsköpun, menntun og atvinnuuppbyggingu. Svæðið hefur tekið miklum breytingum og gegnir í dag mikilvægu hlutverki í áframhaldandi uppbyggingu Reykjanesbæjar.

