Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Salaleiga

Í Hljómahöll er fjölbreytt aðstaða til viðburðahalds. Hægt er að leigja sali fyrir tónleika, fundi, ráðstefnur, árshátíðir, brúðkaup og aðra viðburði. Salirnir eru vel búnir hljóð- og myndbúnaði og henta bæði fyrir stærri og smærri samkomur.

Helstu salir til leigu í Hljómahöll eru Stapi og Berg.

Stapi
Stapi er stærsti salur Hljómahallar og hið sögufræga félagsheimili Keflavíkur. Salurinn hentar vel fyrir stóra viðburði á borð við tónleika, ráðstefnur, fundi og veislur.

Hámarksfjöldi gesta:
Tónleikar: allt að 800 gestir
Dansleikir: allt að 897 gestir
Leikhúsuppröðun: allt að 457 sæti
Borðhald: allt að 450 gestir

Berg
Berg er minni salur sem hentar vel fyrir tónleika, fundi og ráðstefnur. Salurinn er búinn hljóðkerfi, skjávarpa og sýningartjaldi og tekur 127 gesti í sæti.

Nánari upplýsingar um sali, búnað og bókanir má finna á vef Hljómahallar