1. Almennt
Samþykkt þessi á við um girðingar með götum, opnum svæðum, göngustígum í Reykjanesbæ, ásamt öðrum girðingum í sveitarfélaginu á lóðarmörkum.
2. Girðingar með götum, opnum svæðum og göngustígum
Bæjarsjóður tekur ekki þátt í gerð girðinga meðfram götum, opnum svæðum og göngustígum.
Girðingar þar sem landnotkun er ákveðin í skipulagi og lóðarmörk liggja fyrir þegar lóðaúthlutun fer fram eru ekki greiddar af bæjarsjóði.
3. Breyting á skipulagi
Taki skipulag breytingum eftir að lóðum hefur verið úthlutað, þar sem um er að ræða breytta notkun lóðar á forsendum sveitarfélagsins meðfram lóðamörkum, fellur allur kostnaður af gerð girðingar á bæjarsjóð.
4. Kostnaður
Eigandi girðingar ber kostnað sem hlýst af gerð og viðhaldi girðingar.
Lóðarhafar skipta kostnaði við girðingar jafnt, sé sambærileg notkun á lóðunum.