Beint í efni

Forstöðumaður búsetuþjónustu

Reykjanesbær leitar að öflugum einstakling til að stýra búsetuþjónustu hjá ungri manneskju á heimili viðkomandi.

Reykjanesbær hefur sett sér stefnu um velferð íbúa og samfélagsins til ársins 2030. Yfirskrift stefnunnar er Reykjanesbær í krafti fjölbreytileikans.

Lögð er áhersla á að nýta til fulls kosti fjölbreytileikans og efla alla bæjarbúa til að búa sér og börnum gott líf með virkri þátttöku í samfélaginu. Jafnframt er lögð áhersla á að auka lífsgæði og samskipti bæjarbúa og veita jöfn tækifæri til heilbrigðs lífs og hamingju með vellíðan íbúa að leiðarljósi.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Leiðtogahlutverk í faglegu starfi.
  • Ábyrgð á fjárhagslegum rekstri.
  • Tryggir heildarsýn, samfellu og lausnarmiðaða nálgun í þjónustu við notendur
  • Stendur vörð um réttindi íbúa ásamt því að efla möguleika hans til virkrar þátttöku í samfélaginu.
  • Er í samstarfi við aðra þjónustuaðila eftir því sem við á 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla á málefnum fatlaðs fólks.
  • Reynsla af stjórnun og mannaforráðum..
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og hæfni til þverfaglegs samstarfs.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sterk leiðtogahæfni.
  • Rík þjónustulund, áhugi og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu.
  • Hreint sakavottorð.

Hlunnindi:

  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó

Um framtíðarstarf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið heyrir undir velferðarsvið Reykjanesbæjar. Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar undir Laus störf. Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

Nánari upplýsingar: Ólafur Garðar Rósinkarsson Verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks, netfang: Olafur.G.Rosinkarsson@Reykjanesbaer.is

Umsóknarfrestur er til 10.11.26

Sækja um starf