Beint í efni

Leikskólinn Drekadalur - Kennarar

Vilt þú vera hluti af öflugu teymi þar sem gleði, leikur og fagmennska leiða veginn ? Kennarar óskast í Drekadal. 

Nýr leikskóli, leikskólinn Drekadalur í Innri Njarðvík leitar eftir drífandi, skipulögðum og jákvæðum kennurum í okkar frábæra teymi þar sem starfsandinn í Drekadal er góður og einkennist af virðingu, jákvæðni, gleði og góðri samvinnu. Um fjölbreytt framtíðarstörf er að ræða sem krefst góðrar hæfni í mannlegum samskiptum.

Leikskólinn Drekadalur verður 120 barna skóli þegar hann verður fullsetin. Í Drekadal er lögð áhersla markvissa málörvun, flæði og útikennslu ásamt leik barna sem er gert hátt undir höfði í skapandi námsumhverfi. Einkunnarorð leikskólans er gleði, leikur, virðing og hugrekki.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni

  • Vinna að uppeldi, umönnun og menntun barna í samræmi við stefnu leikskólans.
  • Taka virkan þátt í skipulagningu og þróun skólastarfs.
  • Stuðla að jákvæðu og árangursríku samstarfi við foreldra og forsjáraðila í samráði við deildarstjóra.
  • Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu og í samráði við næsta yfirmann.
  • Efla og viðhalda fagþekkingu með reglubundinni sí- og endurmenntun.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari (skal fylgja umsókn).
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er kostur.
  • Einlægur áhugi á velferð og velgengni allra barna.
  • Færni í samskiptum, sveigjanleiki og jákvætt viðmót.
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður.
  • Stundvísi og góð skipulagshæfni.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Hreint sakavottorð er skilyrði.

Hlunnindi kennara og starfsfólks í leikskólum Reykjanesbæ

  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum 
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó  

Um er að ræða 100% starfshlutföll sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Ef ekki fást kennarar til starfa verður ráðnir starfsmenn með aðra uppeldismenntun og eða reynslu innan leikskóla.

Sótt er um á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, undir Laus störf.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar: María Petrína Berg leikskólastjóri, netfang maria.p.berg@derkadalur.is S. 8523964.

Umsóknarfrestur er til 19.11.26

Sækja um starf