Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Útsvar, fasteignagjöld og tengd gjöld

Upplýsingar um útsvar, fasteignagjöld og önnur tengd gjöld.

Útsvar

Útsvar er hluti af tekjuskatti einstaklinga og rennur til sveitarfélagsins. Útsvar er lagt á skattstofn og innheimt samhliða ríkisskatti.

Útsvarsprósenta í Reykjanesbæ er 14,97%.

Útsvarsprósenta er ákveðin árlega og gildir fyrir viðkomandi tekjuár.

Fasteignagjöld

Fasteignagjöld eru lögð á fasteignir og innheimt af eigendum þeirra. Gjalddagar fasteignagjalda eru alls 10, frá 1. febrúar til og með 1. nóvember. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

Elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Reykjanesbæ er veittur tekjutengdur afsláttur af fasteignaskatti.

Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur sem búa í eigin íbúð og:

  • eru 67 ára á árinu eða eldri og/eða
  • hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir 1. janúar 2021

Afsláttur nær eingöngu til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í. Til þess að njóta afsláttar þarf viðkomandi að eiga lögheimili í Reykjanesbæ og vera þinglýstur eigandi fasteignarinnar.

Stofn til útreiknings tekjuviðmiðs er tekju- og útsvarsstofn auk fjármagnstekna samkvæmt skattframtali vegna tekna nýliðins árs. Reglur um viðmiðunartekjur eru birtar sérstaklega.

Gjöld

Fasteignaskattur

Gjald

Íbúðarhúsnæði, A-stofn

0,23% af heildarfasteignamati

Opinberar byggingar, B-stofn

1,32% af heildarfasteignamati

Atvinnuhúsnæði og annað húsnæði, C-stofn

1,45% af heildarfasteignamati

Hesthús

0,23% af heildarfasteignamati

Úrgangshirða

Samkvæmt lögum nr. 55/2003 er sveitarfélögum skylt að innheimta gjald sem næst raunkostnaði við hirðu og meðhöndlun úrgangs. Reykjanesbær byggir gjaldskrá sína á áætluðum kostnaði við málaflokkinn en sú breyting varð á 1.janúar 2024 að nú er greitt fyrir þær tunnur sem eru við hvert heimili. Íbúar geta því að einhverju leyti stýrt því hvaða tunnur henta best við sitt heimili svo lengi sem krafan um fjóra flokka er uppfyllt. Nánari upplýsingar um verð og hvaða tunnutegundir eru í boði má sjá í gjaldskrá Reykjanesbæjar.

Úrgangshirða

Gjald

Blandaður úrgangur – 240 lítra ílát

49.200 kr.

Blandaður úrgangur – 660 lítra ílát

135.300 kr.

Blandaður úrgangur – djúpgámur 3 m³

615.000 kr.

Blandaður úrgangur – djúpgámur 4 m³

820.000 kr.

Blandaður úrgangur – djúpgámur 5 m³

1.025.000 kr.

Matarleifar – 140 lítra ílát

16.100 kr.

Matarleifar – djúpgámur 3 m³

345.000 kr.

Matarleifar – djúpgámur 4 m³

460.000 kr.

Matarleifar – djúpgámur 5 m³

575.000 kr.

Tvískipt ílát – blandaður úrgangur og matarleifar

40.560 kr.

Pappi og pappír – 240 lítra ílát

7.920 kr.

Pappi og pappír – 660 lítra ílát

21.780 kr.

Pappi og pappír – djúpgámur 3 m³

99.000 kr.

Pappi og pappír – djúpgámur 4 m³

132.000 kr.

Pappi og pappír – djúpgámur 5 m³

165.000 kr.

Plastumbúðir – 240 lítra ílát

7.920 kr.

Plastumbúðir – 660 lítra ílát

21.780 kr.

Plastumbúðir – djúpgámur 3 m³

99.000 kr.

Plastumbúðir – djúpgámur 4 m³

132.000 kr.

Plastumbúðir – djúpgámur 5 m³

165.000 kr.

Rekstur grenndar- og gámastöðva

13.500 kr.

Breytingargjald

4.500 kr.

Önnur gjöld

Tegund gjalds

Gjald

Lóðarleiga

1,50% af lóðarmati

Vatnsgjald

HS Veitur ehf. sjá um álagningu og innheimtu

Fráveitugjald / holræsagjald, íbúðarhúsnæði

0,10% af heildarfasteignamati

Fráveitugjald / holræsagjald, atvinnuhúsnæði

0,30% af heildarfasteignamati