Dagskrá fundar
1. Skipting embætta í leikskólaráði (2026060289)
Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 16. júní 2026 voru eftirtaldir kjörnir aðal- og varafulltrúar í leikskólaráð kjörtímabilið 2026-2030:
Aðalfulltrúar: Ásdís Ólafsdóttir (D), Harpa Sævarsdóttir (D), Logi Þór Ágústsson (D), Sighvatur Jónsson (B) og Hildur Björnsdóttir (S).
Varafulltrúar: Elísa Johnsen (M), Helga Guðrún Sigurðardóttir (D), Sverrir Örn Leifsson (D), Þórarinn Darri Ólafsson (B) og Tinna Kristjánsdóttir (S).
Bæjarstjórn kaus Ásdísi Ólafsdóttur sem formann leikskólaráðs.
Leikskólaráð kaus í eftirtalin embætti:
Harpa Björg Sævarsdóttir var kjörin varaformaður leikskólaráðs.
Logi Þór Ágústsson var kjörinn ritari leikskólaráðs.
2. Erindisbréf leikskólaráðs (2026060120)
Drög að erindisbréfi leikskólaráðs lögð fram til kynningar. Fulltrúum ráðsins gefst kostur á að senda inn athugasemdir og verður erindisbréfið lagt fram á næsta fundi ráðsins áður en það fer til umfjöllunar og afgreiðslu forsetanefndar.
3. Siðareglur kjörinna fulltrúa (2026050308)
Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ lagðar fram til kynningar. Kjörnum fulltrúum ber að tileinka sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi. Kjörnir fulltrúar munu undirrita siðareglurnar því til staðfestingar.
4. Mælaborð menntasviðs - fyrsti ársfjórðungur 2026 (2026060250)
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs kynnti mælaborð sviðsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2026.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:50.