Beint í efni

1534. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 16. október 2025 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Bjarni Páll Tryggvason- aðalmaður, Guðbergur Ingólfur Reynisson varamaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður nefndar, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi

Að auki sátu fundinn Valgerður Björk Pálsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Margrét A. Sanders boðaði forföll, Guðbergur Reynisson sat fyrir hana.

Dagskrá fundar

1. Fjárhagsáætlun 2026-2029 (2025060320)

Regína F. Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mætti á fundinn.

Umræður um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2026-2029.

2. Stafrænt ráð sveitarfélaga (2025100207)

Valgerður Björk Pálsdóttir bæjarfulltrúi og fulltrúi SSS í stafrænu ráði sveitarfélaga lagði fram minnisblað um fræðsluferð stafræns ráðs sveitarfélaga til Danmerkur og stöðu stafræns samstarfs á Íslandi og fór yfir málið.

3. Fundargerð stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja 25. september 2025 (2025020420)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja.

4. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 8. október 2025 (2025010161)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

5. Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja 8. október 2025 (2025020059)

Lögð fram til kynningar fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja.

6. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 10. október 2025 (2025020043)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 08:55.