Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1567. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 11. júní 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson varamaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Kristján Pétur Kristjánsson boðaði forföll, Alexander Ragnarsson sat fyrir hann.

Dagskrá fundar

1. Niðurstaða útboðs - lóðarfrágangur Myllubakkaskóla (2021050174)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs mætir á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Lagt fram minnisblað vegna útboðs á lóðarfrágangi við Myllubakkaskóla.

Bæjarráð hafnar öllum innsendum tilboðum þar sem öll tilboð sem bárust voru yfir kostnaðaráætlun. Bæjarráð felur Hreini Ágúst Kristinssyni deildarstjóra eignaumsýslu að vinna málið áfram.

2. Stefna um ljósvist í Reykjanesbæ (2025090508)

Aron Heiðar Steinsson veitustjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Kynnt drög að ljósvistarstefnu Reykjanesbæjar.

Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

3. Innleiðing tengigjalds á fráveitu (2026060140)

Aron Heiðar Steinsson veitustjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað um tengigjald fráveitu Reykjanesbæjar.

Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

4. Launað námsleyfi - verklagsregla (2026060125)

Iðunn Kristín Grétarsdóttir forstöðumaður launa- og kjaradeildar situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagðar fram til kynningar verklagsreglur um launað námsleyfi starfsfólks Reykjanesbæjar.

5. Barnaverndarþjónusta - drög að samningi við Grindavíkurbæ (2025120125)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram uppfærð drög að samningi Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæjar sem kynntur hafði verið á 1564. fundi bæjarráðs 15. maí 2026.

Bæjarráð samþykkir framlögð drög og felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Reykjanesbæjar.

6. Skólaþjónusta - drög að samningi við Grindavíkurbæ (2026060152)

Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram drög að þjónustusamningi milli Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæjar um samstarf veitingu skólaþjónustu við leik- og grunnskóla Grindavíkurbæjar.

Bæjarráð samþykkir framlögð drög og felur Helga Arnarsyni sviðsstjóra menntasviðs að undirrita samning þar að lútandi.

7. Sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra - stuðningur (2026060065)

Lagt fram erindi frá stjórn Íþróttasambandi fatlaðra.

Þar sem íþrótta- og tómstundaráð hefur ekki tekið til starfa leitar íþrótta- og tómstundafulltrúi til bæjarráðs með erindið. Um er að ræða styrkbeiðni vegna þátttöku einstaklinga úr Reykjanesbæ og skv. íþrótta- og tómstundafulltrúa er til fjármagn á lykli 0600-06811. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

8. Stuðningur við afreksíþróttafólk (2026060112)

Lagt fram erindi frá Sundráði ÍRB, beiðni um stuðning við sundfólk sem hefur verið valið í landsliðsverkefni þetta árið. Áætlaður kostnaður vegna verkefnisins er kr. 5.000.000.

Bæjarráð samþykkir erindið og felur Hafþóri B. Birgissyni íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum. 

9. Sumarstörf hjá knattspyrnudeildum Keflavíkur og Njarðvíkur (2026060128)

Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir tilfærslu fjármagna af launalykli Vinnuskólans 06-270-1110 yfir á fjármagnaslykla 06-610-4990 knattspyrnudeild Keflavíkur og 06-611-4990 knattspyrnudeild Njarðvíkur vegna ráðningar starfsfólks yfir sumartímann.

Bæjarráð samþykkir 5-0 tilfærslu fjármagnsins.

10. Kosningar í nefndir/stjórnir sbr. 58. gr. samþykktar um stjórn Reykjanesbæjar (2026060015)

10.1. Stjórn Brunavarna Suðurnesja bs., 3 aðalmenn og 3 til vara

Aðalmenn: Gunnlaugur Kárason (M), Guðbergur Reynisson (D) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S)

Varamenn: Rúnar Fossádal Árnason (M), Alexander Ragnarsson (D) og Aðalheiður Hilmarsdóttir (S)

10.2. Svæðisskipulag Suðurnesja, 2 aðalmenn og 2 til vara

Aðalmenn:  Rúnar Fossádal Árnason (M) og Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi

Varamenn: Guðbergur Reynisson (D) og Gunnlaugur Kárason (M)

10.3. Landeigendur Ytri-Njarðvíkurhverfis með Vatnsnesi, 1 aðalmaður og 1 til vara

Aðalmaður: Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og skipulagssviðs

Varamaður: Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingafulltrúa

10.4. Farsældarráð Suðurnesja

Margrét Þórarinsdóttir (D) fyrir hönd meirihluta bæjarstjórnar

Sigurrós Antonsdóttir (S) fyrir hönd minnihluta bæjarstjórnar

Heru Ósk Einarsdóttur fyrir hönd velferðarsviðs

Vilborg Pétursdóttir fyrir hönd velferðarsviðs

Helga Arnarson fyrir hönd menntasviðs

Kolfinna Njálsdóttir fyrir hönd menntasviðs

11. Umsagnarmál í samráðsgátt (2026010453)

Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga), mál nr. 93/2026 

https://island.is/samradsgatt/mal/4240

Lögð fram umsögn frá Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra atvinnu- og hafnamála.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:25.