Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1568. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 18. júní 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Kristján Pétur Kristjánsson aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Dagskrá fundar

1. Málefni heilbrigðisnefnda (2026010453)

Ásmundur E. Þorkelsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja sat fundinn undir þessu dagskrármáli.

Umræður um málefni heilbrigðiseftirlits á Suðurnesjum.

Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.

2. Travelbase Iceland ehf. - ökutækjaleiga/geymslustaður ökutækja Kliftröð 9 - beiðni um umsögn (2026060204)

Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.

3. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 9. júní 2026 (2026010670)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

4. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 10. júní 2026 (2026010317)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

5. Fundargerðir stjórnar Kölku sf. 14. apríl og 12. maí 2026 (2026040232)

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Kölku sf.

6. Árshlutauppgjör - 3 mánaða uppgjör (2026060082)

Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sat fundinn undir þessu dagskrármáli.

Lögð fram drög að 3 mánaða árshlutauppgjöri fyrir tímabilið 1. janúar - 31. mars 2026.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30.