Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1570. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 2. júlí 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson varamaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Kristján Pétur Kristjánsson boðaði forföll, Alexander Ragnarsson sat fyrir hann.

Bæjarráð samþykkir 5-0 að taka á dagskrá Viljayfirlýsingu vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar gagnavers á Vogshól (2026070022). Fjallað er um málið undir dagskrárlið 11.

Dagskrá fundar

1. Grænásvegur - tímabundnar lausnir í samgöngumálum

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað með tillögu að tímabundinni breytingu á gatnakerfi við Grænásbraut.

Bókun minnihlutabæjarráðs:

„Ánægjulegt er að forgangsröðun í umferðaröryggi heldur áfram við Grænásgatnamótin og Ásahverfið. Brýnt er að farið verði af stað með verkefnið og spurning hvort að best sé að stofna sérstakan stýrihóp til að halda utan um það þar sem fyrri bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur tvisvar áður samþykkt erindi um forgang málsins, bæði í júní 2025 og í apríl 2026 en ekkert hefur gerst af þeim verkum sem samþykkt voru. Á það við um fyrirhugað hringtorg við Bergás/Njarðarbraut,fullnaðarhönnun á Grænáshringtorgi, gangbrautarljós og hraðahindrun viðgatnamót Grænáss/Njarðarbrautar ásamt vinnu við undirbúning á undirgöngum fyrir gangandi og hjólandi frá Ásahverfi undir Grænás.

Í fjárfestingaráætlun ársins 2026 er tiltekið fjármagn í hringtorg við Bergás ásamt undirbúningi við hringtorg við Grænás. Hvar standa þessar framkvæmdir og hvað skýrir þessa framkvæmdatöf?

Bæjarfulltrúum Samfylkingar og Framsóknar þykir sjálfsagt og eðlilegt að loka Bergás götunni við Grænásveg, sé það vilji íbúa hverfisins enda er talsverð umferð um götuna. Það vantar þó samtal við þrjá íbúðaeigendur í götunni og óeðlilegt að fara í eins umfangsmiklar breytingar án samtals við alla íbúa. Það hefði verið langbesta lausnin að loka gatnamótum Bergás við Grænásveg eftir að hringtorgið við Bergás/Njarðarbraut væri tilbúið til að auðvelda íbúum Ásahverfis að komast út úr hverfinu. Það er áhyggjuefni að verið sé að loka einum vegi af þremur út úr hverfinu, sem mun leiða til aukins umferðarþunga um Bergás við Njarðarbraut en umrædd gatnamót eru nú þegar hættuleg vegna mikillar umferðar frá báðum áttum Njarðarbrautar. Íbúar Ásahverfis munu í kjölfarið sitja lengur fastir í bið eftir að komast inn á Njarðarbrautina og það er óásættanlegt og stórhættulegt.

Við teljum enn mikilvægt að setja framkvæmdir við hringtorg í forgang eins og  búið var að ákveða og starfsfólk hefur unnið að um nokkurn tíma. Það er varanleg lausn sem bæði bætir umferðarflæði og öryggi vegfarenda.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn.

Bókun meirihlutabæjarráðs:

„Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks getur ekki tekið ábyrgð á því hvernig fyrri meirihluti fylgdi sínum málum eftir. Nýr meirihluti mun fylgja þessum málum fast eftir og setja umferðaröryggi og greitt umferðarflæði í forgang. Vinna við frekari umferðarframkvæmdir á og við Njarðarbraut er í fullri vinnslu.“

Alexander Ragnarsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki og Gunnlaugur Kárason Miðflokki.

Bæjarráð samþykkir 5-0 tímabundnar breytingar á gatnakerfi við Grænásbraut sem eru lokun við gatnamót Bergáss ásamt breytingum við Grænás og Njarðarbraut.

2. Njarðvíkurheiði - rekstur jarðefnamóttökusvæðis

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað vegna reksturs jarðefnamóttökusvæðis sunnan Reykjanesbrautar. Settar eru fram þrjár tillögur um rekstrarfyrirkomulag.

Bæjarráð samþykkir 5-0 tillögu eitt og felur Guðlaugi Helga Sigurjónssyni sviðsstjóra umhverfis-og framkvæmdasviðs að vinna kostnaðarmat í samræmi við tillöguna og leggja fyrir bæjarráð.

3. Njarðarvellir 2 – sala á húsnæði

Árni Á. Árnason frá Libra lögmönnum, Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Regína F. Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármáls- og stjórnsýslusviðs sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað vegna tilboða sem bárust í Njarðarvelli 2.

Bæjarráð samþykkir 5-0 að veita Árna Á. Árnasyni frá Libra lögmönnum umboð til að hefja samningaviðræður við hæstbjóðanda.

4. Umsögn vegna rekstrarleyfis - Antycyponek ehf., Hringbraut 92A

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um rekstur gististaðar í flokki II- G. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.

5. Umsögn vegna rekstrarleyfis - Péter Zsolt Fekete, Sjávargata 23

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um rekstur gististaðar í flokki II- G. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð hafnar umsókninni með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.

6. Búseta barna með fjölþættar stuðningsþarfir - reglugerð

Bæjarráð Reykjanesbæjar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Bæjarráð telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og ekki gott ef samningar ríkisins gagnvart sveitarfélögum standast ekki. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taka þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/06/25/Gagnryni-a-reglugerd-um-vistun-barna-med-fjolthaettar-studningstharfir-svarad/

7. Öldungaráð sveitarfélaga - erindi LEB

Lagt fram erindi frá Landssambandi eldri borgara þar sem hvatt er til að skipa í öldungaráð sveitarfélaga.

Skipað var í öldungaráð Reykjanesbæjar 2. júní 2026.

Fyrirspurn frá minnihluta bæjarráðs:

„Í takt við markmið Landssambands eldri borgara um aukið lóðaframboð fyrir leiguhúsnæði vilja bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar fá svör frá Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum um eftirfarandi:

·       Hver er stefna nýja meirihlutans um lóðaframboð fyrir óhagnaðardrifin leigufélög til uppbyggingar fyrir eldra fólk?

·       Hver er stefna nýja meirihlutans um lóðaframboð fyrir íbúðir fyrir fatlað fólk?

·       Hver er stefna nýja meirihlutans um lóðaframboð fyrir félagslegt húsnæði?

Svör óskast ánæsta fundi bæjarráðs þann 9. júlí næstkomandi.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn.

8. Samband íslenskra sveitarfélaga - framboð til stjórnar

Lagðar fram upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna framboðs til stjórnar Sambandsins.

https://samband-islenskra-sveitarfelaga.cdn.prismic.io/samband-islenskra-sveitarfelaga/Z_ZUzHdAxsiBweux_SamþykktirSambandsins_endanlegútgáfa2025.pdf

9. Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 25. júní 2026

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Bæjarráð tekur undir eftirfarandi bókun 3-0:

Mál 15 frá fundargerð atvinnu- og hafnarráðs Upplýsingagjöf sviðsstjóra (2026010379)

„Í upplýsingagjöf sviðsstjóra er bent á að Isavia virðist stefna á uppbyggingu á hóteli með yfir 200 herbergjum á flugvallarsvæði alþjóðaflugvallarins. Þessi hugmynd vekur upp spurningar varðandi hlutverk Isavia og hvort viðkomandi stofnun sé ekki komin út fyrir starfssvið sitt. Uppbygging hótels innan áhrifasvæðis Isavia skerðir samkeppnisstöðu annarra gistimöguleika á Suðurnesjum ef af verður og getur haft neikvæð áhrif á uppbyggingu ferðaþjónustuaðila. Atvinnu- og hafnarráð telur rétt að bæjaryfirvöld óski eftir fundi með forsvarsmönnum félagsins til að fá nánari skýringar á málinu.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn sitja hjá.

Bæjarráð tekur undir eftirfarandi bókun 5-0:

Mál 16 frá fundargerð atvinnu- og hafnarráðs Sólmyrkvi 12. ágúst 2026 (2025040174)

„Atvinnu-og hafnarráð hvetur fyrirtæki, stofnanir og aðra þjónustuaðila á Reykjanesi til að undirbúa sig vel fyrir daginn, tryggja gott aðgengi að þjónustu eftir fremsta megni og taka vel á móti þeim fjölmörgu gestum sem munu heimsækja svæðið. Ráðið hvetur þjónustuaðila til að fara yfir opnunartíma og mönnun, bæði á viðburðardeginum og dagana í kring, með hliðsjón af þeirri auknu eftirspurn sem búast má við. Almyrkvinn er einstakt tækifæri til að sýna þá gestrisni og öflugu þjónustu sem einkennir Reykjanes og skapa gestum eftirminnilega upplifun.“

Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 5-0.

10. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs 26. júní 2026

Fundargerðin lögð fram til samþykktar.

Fundargerðin samþykkt 5-0.

11. Viljayfirlýsing vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar gagnavers á Vogshól

Lögð fram viljayfirlýsing milli Reykjanesbæjar og Orbis Invest.

Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:15.