Dagskrá fundar
1. Umbóta- og hagræðingarteymi - fjárhagsáætlunarvinna (2026070070)
Fannar Jónasson ráðgjafi sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann vinnu umbóta- og hagræðingarteymis.
2. Beiðni um flutning fjármagns milli lykla (2026090001)
Ólafur Garðar Rósinkarsson, verkefnastjóri í málefnum fatlaðra, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Beiðni um tilfærslu fjármagns af lykli 02582 á lykil 02563 vegna flutnings íbúa á milli úrræða lögð fram.
Bæjarráð samþykkir beiðnina.
3. Náttúruhamfaratryggingar - byggingar á þekktum hættusvæðum (2025090242)
Erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands lagt fram, en þar er vakin athygli á áhrifum 16. gr. laga nr. 55/1992 þegar hús eða önnur mannvirki eru reist á svæðum sem almennt var vitað fyrir fram að væru hættuleg með tilliti til náttúruhamfara.
4. Guðlaug M. Pálsdóttir (Fjölbrautaskóli Suðurnesja) - umsókn um tækifærisleyfi (2026090010)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
5. Fundargerð Almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur 24. ágúst 2026 (2026020271)
Fundargerð Almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur frá 24. ágúst 2026 lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:05.