Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1578. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 10. september 2026 kl. 10.26.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Kristján Pétur Kristjánsson aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Bæjarráð samþykkir 5-0 að taka á dagskrá Verknámshús Fjölbrautaskóla Suðurnesja - viljayfirlýsing (2024010257). Fjallað er um málið undir dagskrárlið 9.

Dagskrá fundar

1. Sjávargata 4 og Berghólabraut 9a – makaskipti (2026090111)

Tekið fyrir tilboð um makaskipti á Sjávargötu 4 og Berghólabraut 9a Reykjanesbæ. Er þar horft til möguleika í þróun hafnarinnar á komandi árum. Það svæði sem horft hefur verið til afmarkast af Sjávargötu frá Hafnargötu og Njarðarbraut að Bergási. Í þessari vinnu hefur m.a. verið horft til þess að samgöngutengingar frá hafnarsvæðinu og Fitjabraut við Reykjanesbraut verði sem auðveldastar fyrir umferð stórra og þungra ökutækja í framtíðinni.

Bæjarráð samþykkir makaskipti á lóðum 5-0. Drög að samningi verði lagt fyrir á næsta bæjarráðsfundi.

2. Eignarhlutur í landi Höskuldarkots (2026090119)

Lagt fram minnisblað þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins varðandi kaup á eignarhlut tiltekinna erfingja í landi Höskuldarkots.

Bæjarráð felur Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur lögfræðingi umhverfis- og framkvæmdasviðs að afla frekari gagna í samræmi við umræður á fundinum.

3. Fjarprófaþjónusta á Suðurnesjum (2026090083)

Lagt fram bréf frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Þekkingarsetri Suðurnesja.

Bókun bæjarráðs Reykjanesbæjar:

Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur undir þær áhyggjur sem fram koma í erindi stjórna Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Þekkingarseturs Suðurnesja vegna breytinga á skipulagi og fjármögnun fjarprófaþjónustu á Suðurnesjum.

Öflugt aðgengi að háskólanámi óháð búsetu skiptir miklu máli fyrir íbúa og áframhaldandi uppbyggingu Suðurnesja. Fjarprófaþjónusta er mikilvægur hluti þess að tryggja slíkt aðgengi og þarf fjármögnun þjónustunnar að taka mið af raunverulegu umfangi, þjónustuþörf og kostnaði við framkvæmd hennar.

Bæjarráð telur jafnframt mikilvægt að breytingar á þjónustu sem þessari séu unnar í góðu samráði við þá aðila sem sinna henni og með hagsmuni námsfólks á svæðinu að leiðarljósi.

Bæjarráð skorar því á menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að taka fyrirkomulag fjarprófaþjónustu á Suðurnesjum og fjármögnun hennar til endurskoðunar í samráði við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Þekkingarsetur Suðurnesja og tryggja að þjónusta við háskólanema á Suðurnesjum skerðist ekki.

4. Erindisbréf bæjarráðs (2026060120)

Forsetanefnd óskar eftir umsögn um drög að erindisbréfi bæjarráðs.

Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum og vísar því til forsetanefndar.

5. Reykjanesbær - umsókn um tækifærisleyfi (2026090096)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

6. Fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga 21. ágúst 2026 (2026080050)

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga.

7. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 28. ágúst 2026 (2026010670)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

8. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 31. ágúst 2026 (2026010077)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja.

9. Verknámshús Fjölbrautaskóla Suðurnesja - viljayfirlýsing (2024010257)

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu milli Reykjanesbæjar og Fjölbrautaskóla Suðurnesja um stækkun verknámshúss Fjörbrautaskólans.

Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna fyrir hönd Reykjanesbæjar með leiðréttingum í samræmi við umræður sem fram komu á fundinum.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:15.