Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1579. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 17. september 2026 kl. 08.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Kristján Pétur Kristjánsson aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Dagskrá fundar

1. Árshlutauppgjör - 6 mánaða uppgjör (2026060082)

Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram drög að 6 mánaða árshlutauppgjöri fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2026.

2. Geymslusvæði - stjórn bílastæðasjóðs (2026090261)

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Umræður um geymslusvæði vegna bíla, gáma og fleira sem eru í óskilum innan sveitarfélagamarka Reykjanesbæjar.

Stjórn bílastæðasjóðs felur Guðlaugi Helga Sigurjónssyni, sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur lögfræðingi umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

3. Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga - endurskoðun (2026070062)

Lögð fram svör við erindi frá innviðaráðuneytinu vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.

Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að koma svörum Reykjanesbæjar til innviðaráðuneytisins.

4. Forsendur kjarasamninga (2026090242)

Lagt fram erindi frá formanni VR, Landsambands íslenzkra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins f.h. Fagfélaganna.

Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirbúa svör við erindinu.

5. Kjarasamningar sveitarfélaga - launatöfluauki (2026090262)

Lagt fram til upplýsingar.

6. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 27. apríl, 18. júní, 7. og 21. ágúst 2026 (2026020369)

Lagðar fram til upplýsingar fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

7. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 9. september 2026 (2026010317)

Lögð fram til upplýsingar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

8. Starfsmannamál eignaumsýslu (2026090263)

Kristín Þórdís Þorgilsdóttir mannauðsstjóri, Andri Örn Víðisson deildarstjóri upplýsingatæknideildar og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað.

Bæjarráð felur Kristínu Þórdísi Þorgilsdóttur mannauðsstjóra, Andra Erni Víðissyni deildarstjóra upplýsingatæknideildar og Guðlaugi Helga Sigurjónssyni, sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum. Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.

Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) situr hjá undir þessu máli.

9. Starf sviðsstjóra velferðarsviðs (2026080010)

Kristín Þórdís Þorgilsdóttir mannauðsstjóri og Kolbrún Sigtryggsdóttir mannauðsráðgjafi sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram trúnaðargögn vegna umsókna um starf sviðsstjóra á velferðarsviði Reykjanesbæjar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:05.