Dagskrá fundar
1. Umsögn vegna rekstrarleyfis veitingastaðar - Kaffi Duus ehf., Duusgata 10
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um leyfi til að reka veitingastað í flokki II - A. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.
2. Umsögn vegna ökutækjaleigu/geymslustaðar ökutækja - Indie Campers ehf., Fitjabraut 3
Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.
3. Umsögn vegna rekstrarleyfis gististaðar - Fjörferðir ehf., Þórustígur 4
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um rekstur gististaðar í flokki II – C. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð hafnar umsókninni með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.
4. Umsögn vegna rekstrarleyfis gististaðar - Gospel channel Evrópa ehf./Ljósafoss Aurora ehf., Vatnsnesvegur 5
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um rekstur gististaðar í flokki II – G. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð hafnar umsókninni með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.
5. Fundargerð aðalfundar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. 20. ágúst 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf.
6. Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja 15. september 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Undir lið tvö - Framtíð verkefna HES, samþykkir bæjarráð að bæjarráð verði stýrihópur vegna framtíðarverkefna heilbrigðiseftirlitsins. Bæjarráð mun skila af sér gögnum um málið fyrir hönd Reykjanesbæjar í síðasta lagi í lok desember.
Bæjarráð tekur þá ákvörðun í ljósi þess að verkefnin munu flytjast að megninu til ríkisins en mun vinna áfram í málinu sem stýrihópur þess þar sem verkefnin verða rýnd til framtíðar í hag sveitarfélagsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í takt við umræður á fundinum.
7. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis
• Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl., 4. mál
Með því að smella hér opnast frumvarp til breytingar á lögum
• Frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 5. mál
Með því að smella hér opnast frumvarp til laga
Umsagnarmál lögð fram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:48.