Dagskrá fundar
1. Ráðning sviðsstjóra velferðarsviðs
Kristín Þórdís Þorgilsdóttir mannauðsstjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri vék af fundi undir þessum lið.
2. Eignasjóður Reykjanesbæjar – staða fjárfestingaráætlunar
Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað – Beiðni um viðauka við fjárfestingaráætlun eignasjóðs 2026 vegna framkvæmda við Myllubakkaskóla og Holtaskóla.
Bæjarráði hefur verið kynnt neikvæð frávik í fjárfestingaáætlun á stöðupunkti 28.09.2026 að fjárhæð 271,8 m.kr.
Bókun minnihluta bæjarráðs:
„Bæjarfulltrúar Framsóknar og Samfylkingar lýsa yfir alvarlegum áhyggjum af meðferð meirihluta bæjarstjórnar á fjárheimildum framkvæmda við Myllubakkaskóla og Holtaskóla.
Undirritaðar hafa ávallt stutt endurbætur grunnskólanna, hafa forgangsraðað fjármagni eftir fremsta megni til framkvæmdanna og hafa áður samþykkt hækkun lánaheimildar til að hraða framkvæmdum. Að auki höfum við tekið fram að ef fjárhagslegt svigrúm er til staðar til að flýta framkvæmdum þá styðjum við þá ákvörðun heilshugar eins og áður. Sá stuðningur breytir ekki þeirri kröfu að ákvarðanir um framkvæmdir og fjárhagslegar skuldbindingar verða að byggjast á samþykktum heimildum og að kjörnir fulltrúar fái tímanlega upplýsingar um breytingar á umfangi, kostnaði og framvindu verkefna.
Bæjarráð hefur ekki fjallað formlega um málefni uppbyggingar Myllubakka- og Holtaskóla síðan 25. júní eða fyrir 14 vikum síðan. Á þeim fundi voru lögð fram gögn um raunstöðu framkvæmda þann 22. júní sem sýndu að í Myllubakkaskóla var búið að framkvæma fyrir 641 milljón eða um 65% af þeim 979 milljónum sem áætlaðar voru á árinu og í Holtaskóla var búið að framkvæma fyrir 366 milljónir eða um 79% af þeim 461 milljónum sem áætlaðar voru á árinu. Ljóst var að framkvæmdir voru á áætlun og innan fjárheimilda. Á fundinum var einnig óskað eftir að samþykktur yrði viðauki við fjárfestingaáætlun til að halda framkvæmdum áfram á síðasta ársfjórðungi og þannig flýta verkþáttum ársins 2027. Meirihlutinn vildi þá rýna áætlanir betur og fá málið inn sem fyrst aftur sem ekkert varð af og nú liggur fyrir að ráðist var í framkvæmdirnar án frekari umfjöllunar eða samþykktrar viðbótarfjárheimildar og verkin tvö eru farin verulega umfram heimildir.
Allar fullyrðingar meirihlutans um “frávik” eru einfaldlega rangar. Framkvæmdaáætlun var fjármögnuð út ágúst og lauk þeim framkvæmdum sem þar voru áætlaðar. Allt annað er framúrkeyrsla á verkefnunum án formlegrar heimildar bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Það er verulegt áhyggjuefni að framkvæmdir séu farnar um 270 milljónum fram úr áætlun á einum mánuði.
Þar sem enn er óljóst hver ber ábyrgð á eftirliti með fjárheimildum framkvæmdanna eftir að stjórn eignasjóðs var lögð niður þá teljum við nauðsynlegt að áður en hægt er að samþykkja fyrirliggjandi viðauka liggi fyrir svör um eftirfarandi atriði:
1. Hvenær var ákvörðun tekin um að hefja verkþætti sem framkvæma átti árið 2027 á árinu 2026?
2. Hver tók þá ákvörðun og á hvaða heimild byggði hún?
3. Til hvaða fjárhagslegu skuldbindinga hefur verið stofnað vegna þeirra og að hvaða marki rúmast þær innan samþykktra fjárheimilda?
4. Hvaða verkþættir voru samþykktir í fjárfestingaáætlun 2026 og hvaða fjárhæðir voru heimilaðar til þeirra?
5. Hvaða verkþættir voru áætlaðir árið 2027?
6. Hvers vegna fóru framkvæmdir af stað áður en viðauki við fjárfestingaáætlun var lagður fram og samþykktur?
7. Hvernig á að fjármagna viðaukann með framúrkeyrslunni og hvaða áhrif hefur hann á lántöku, lausafjárstöðu og aðrar fyrirhugaðar fjárfestingar?
8. Hvers vegna kom beiðni um viðauka ekki til bæjarráðs í júlí eða í ágúst fyrir umframkeyrslu verkefnanna?
Jafnframt óskum við eftir upplýsingum um stöðu handbærs fjár, hversu mikið er ónýtt af lánalínu sveitarfélagsins ásamt helstu forsendum og horfum fyrir fjárhagsáætlun ársins 2027, sem liggur enn ekki fyrir bæjarráði.
Undirritaðar styðja nú sem áður uppbyggingu Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Það er þó óásættanlegt að bæjarráð sé sett í þá stöðu að samþykkja viðbótarfjárheimildir án fullnægjandi upplýsinga um ákvarðanirnar að baki þeim, skuldbindingar sem þegar hafa verið stofnaðar og hvernig standa eigi undir útgjöldunum.“
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S).
Bæjarráð samþykkir 3-2 viðauka við fjárfestingaáætlun vegna framkvæmda við húsnæði Myllubakkaskóla að fjárhæð 120.000.000,- og vegna framkvæmda við húsnæði Holtaskóla að fjárhæð 50.000.000,- sem gerir samtals 170.000.000,-. Viðaukanum verður mætt með hluta af væntu söluandvirði hjúkrunarheimilis að Nesvöllum við Njarðarvelli 2. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) greiða atkvæði á móti.
4. Lóðasjóður Reykjanesbæjar
Tekin fyrir tillaga sem Framsóknarflokkur lagði fram á fundi bæjarstjórnar þann 15. september sl. um stofnun lóðasjóðs Reykjanesbæjar.
Bæjarráð felur Unnari Steini Bjarndal bæjarlögmanni og Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur lögfræðingi umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna áfram í málinu.
5. Sjávargata 4 og Berghólabraut 9a – makaskipti
Lögð fram drög að kaupsamningi um makaskipti á fasteignum.
Bæjarráð samþykkir drögin 5-0 og felur Vilhjálmi Árnasyni að undirrita samninginn.
6. Þjóðarsátt um verðstöðugleika
Lagt fram erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands.
7. Lúðrasveitalandsmót í Reykjanesbæ 9.-11. október 2026 - beiðni um styrk
Lögð fram beiðni um styrk vegna lúðrasveitalandsmóts.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni að svo stöddu þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun.
8. Óperutónleikar Þjóðaróperunnar, Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í Hljómahöll 1. nóvember 2026 - beiðni um fjárstuðning
Lögð fram beiðni um styrk vegna óperutónleika sem fluttir verða í Hljómahöll í samvinnu við hina nýju Þjóðaróperu.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni að svo stöddu þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun.
9. Reykjalundur - ákall um stuðning við uppbyggingu
Lögð fram beiðni um styrk vegna uppbyggingar Reykjalundar.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni að svo stöddu þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun.
10. Fjörheimar - umsókn um tækifærisleyfi
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
11. Fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar 1. september 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar.
12. Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 7. september 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
13. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 11. september 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
14. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 17. september 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja.
15. Fundargerð Þekkingarseturs Suðurnesja 24. september 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð Þekkingarseturs Suðurnesja.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:25.