Dagskrá fundar
1. Fjárhagsáætlun og fjárreiður Reykjanesbæjar
Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Umræður um fjárhagsáætlunarvinnu, fjárstreymi og stöðu fjárfestinga sveitarfélagsins.
Fyrirspurn frá minnihluta bæjarráðs:
Óskað er eftir stuttum skýrum svörum við eftirfarandi spurningum vegna framkvæmda við Myllubakkaskóla og Holtaskóla út frá þeim forsendum að samþykktum verkþáttum í fjárfestingaáætlun 2026 var lokið í upphafi hausts og óskað var eftir viðauka til að halda framkvæmdum áfram frá september til desember í stað þess að stöðva framkvæmdir á þeim tímapunkti:
1. Hver veitti sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og eignaumsýslu heimild, hvort sem hún var munnleg eða skrifleg, og á hvaða vettvangi til að halda vinnu áfram eftir að ljóst var að fjárheimildir ársins 2026 höfðu klárast?
2. Vinna við hvaða framhaldsverkþætti, sem ekki voru samþykktir af stjórn Eignasjóðs sbr. gögnum og í fjárfestingaáætlun 2026, voru hafnir á grundvelli þeirrar heimildar og hver var áætluð fjárhæð þeirra verkþátta þegar heimildin var veitt?
3. Eru framkvæmdir í þessum tveimur verkefnum komnar að einhverju leyti lengra en gert var ráð í samþykktum verkþáttum í fjárfestingaáætlun 2026?
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir; Framsókn og Guðný Birna Guðmundsdóttir, Samfylking.
2. Ráðning sviðsstjóra velferðasviðs
Kristján Pétur Kristjánsson vék af fundi undir þessu máli, Guðbergur Reynisson sat fundinn undir þessu máli.
Kristín Þórdís Þorgilsdóttir mannauðsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir 5-0 ráðningu sviðsstjóra velferðarsviðs.
3. Gamla búð
Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu og Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur Unnar Steini Bjarndal bæjarlögmanni og Hreini Ágúst Kristinssyni deildarstjóra eignaumsýslu að vinna áfram í málinu samkvæmt umræðum á fundinum.
4. Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja 28. september 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
5. Eignasjóður Reykjanesbæjar – staða fjárfestingaráætlunar
Lagt fram minnisblað vegna fyrirspurna minnihluta frá bæjarráðsfundi 1. október sl.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:30.