Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1584. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 15. október 2026 kl. 08.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Kristján Pétur Kristjánsson aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Dagskrá fundar

1. Sjúkraflutningar á Suðurnesjum

Eyþór Rúnar Þórarinsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram skýrsla um greiningu kostnaðar vegna sjúkraflutninga á Suðurnesjum.

Bæjarráð Reykjanesbæjar lýsir þungum áhyggjum af vanfjármögnun ríkisins á sjúkraflutningum á Suðurnesjum.

Sjúkraflutningar eru á ábyrgð ríkisins og eiga greiðslur Sjúkratrygginga Íslands að standa undir kostnaði við þjónustuna. Samkvæmt kostnaðargreiningu Deloitte var halli á rekstri sjúkraflutninga 14 m.kr. árið 2025. Áætlað er að hallinn verði um 48 m.kr. árið 2026, þar sem greiðslur lækka milli ára þrátt fyrir hækkun launa og rekstrarkostnaðar.

Kröfur til þjónustunnar hafa jafnframt aukist án þess að fjármögnun hafi fylgt þeirri þróun. Íbúum á Suðurnesjum hefur fjölgað hratt og áframhaldandi fjölgun mun kalla á aukna þjónustu og viðbragðsgetu.

Bæjarráð Reykjanesbæjar skorar á heilbrigðisráðherra og Sjúkratryggingar Íslands að tryggja að greiðslur standi að fullu undir raunkostnaði við sjúkraflutninga á Suðurnesjum.

2. Beingreiðslusamningur - beiðni um endurútreikning og endurgreiðslu kostnaðar

Ólafur Garðar Rósinkarsson, verkefnastjóri í málefnum fatlaðra sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram beiðni um endurútreikning og endurgreiðslu kostnaðar vegna beingreiðslusamnings.

Bæjarráð samþykkir 5-0 að flytja á milli deilda fjárhæðina 24.758.701 kr. þar sem hagræðingu hefur verið náð vegna þjónustukaupa við Klettabæ.

Flutningur á fjármagni verður á 02551-6105 af 02582-6110 og fer í viðauka við fjárhagsáætlun 2026. 

3. Fjárhagsáætlun og fjárreiður Reykjanesbæjar

Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað um sjóðsstreymi og fjárstreymi sveitarfélagsins út árið 2026.

4. Vinna umbóta- og hagræðingarteymis

Fannar Jónasson ráðgjafi og Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.

Umræður um stöðu verkefna umbóta- og hagræðingarteymis.

5. Góðgerðartónleikar kórs Njarðvíkurkirkju – afnot af Stapa

Lögð fram beiðni um afnot af Stapa í Hljómahöll vegna góðgerðartónleika Kórs Njarðvíkurkirkju.

Bæjarráð vísar til gildandi fyrirkomulags varðandi afnotabeiðnir af Stapa og getur því ekki orðið við einstaka beiðnum.

Bæjarráð tekur undir mikilvægi verkefnisins sem góðgerðartónleikunum er ætlað að styðja, samfélagssöfnun fyrir nýju brjóstaskimunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Bæjarráð mun fjalla sérstaklega um aðkomu Reykjanesbæjar að söfnuninni á næsta bæjarráðsfundi.

6. Opni leikskólinn Memm í Reykjanesbæ 2027

Lögð fram beiðni um styrk vegna starfsemi Opna leikskólans Memm í Reykjanesbæ að fjárhæð kr. 7.000.000.

Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni að svo stöddu þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun.

7. Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta 2027

Lögð fram beiðni um fjárstuðning fyrir árið 2027.

Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni að svo stöddu þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun.

8. Beiðni um framlag til starfsemi Samtaka um kvennaathvarf

Lögð fram beiðni um rekstrarstyrk fyrir árið 2027 að fjárhæð kr. 800.000.

Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni að svo stöddu þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun.

9. Körfuknattleiksdeild U.M.F.N - umsókn um tækifærisleyfi

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

10. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 23. september 2026

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

11. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar), 156. mál. 

Með því að smella hér má skoða frumvarpið á vef Alþingis

Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 59. mál.

Með því að smella hér má skoða frumvarpið á vef Alþingis

Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá, 88. mál.

Með því að smella hér má skoða þingsályktunartillöguna á vef Alþingis

Umsagnarmál lögð fram.

12. Umsagnarmál í samráðsgátt

Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga, mál nr. S-191/2026. 

Með því að smella hér má skoða umsagnarmálið á samráðsgátt stjórnvalda

Umsagnarmál lagt fram.

13. Stjórnarfundur Tjarnargötu 12 ehf. - framkvæmdir

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.

Kynnt staða kostnaðar við endurbætur á ráðhúsi Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:05.