Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1585. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 22. október 2026 kl. 08.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Kristján Pétur Kristjánsson aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður, Róbert Jóhann Guðmundsson varamaður

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir boðaði forföll, Róbert Jóhann Guðmundsson sat fyrir hana.

Dagskrá fundar

1. Fjárhagsáætlun og fjárreiður Reykjanesbæjar (2026070036)

Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bókun minnihluta bæjarráðs:

„Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar kalla eftir því að lögð verði fram heildstæð tillaga að viðauka sem tekur til fráviks fjárfestingaáætlunar og nýrrar heimildar að upphæð alls 441,8 milljónir kr. og sýni með ótvíræðum hætti hvernig öllum þeim útgjöld verður mætt.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og Róbert Jóhann Guðmundsson (B).

Lögð fram svör við fyrirspurn minnihluta frá 1583. fundi bæjarráðs:

Vísað er til fyrirspurnar Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur og Guðnýjar Birnu Guðmundsdóttur á 1583. fundi bæjarráðs 7. október 2026 vegna framkvæmda við Myllubakkaskóla og Holtaskóla.

1. Hver veitti sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og eignaumsýslu heimild, hvort sem hún var munnleg eða skrifleg, og á hvaða vettvangi til að halda vinnu áfram eftir að ljóst var að fjárheimildir ársins 2026 höfðu klárast?

Ákvarðanir um að hefja þá verkþætti sem framkvæmdir voru á árinu 2026 voru teknar í upphafi árs, í tíð fyrri meirihluta, með áherslu á að hefja framkvæmdir um leið og skóla lyki að vori. Engar ákvarðanir voru teknar um frekari framkvæmdir eftir að allar upplýsingar um stöðu framkvæmdakostnaðar ársins lágu fyrir. Viðauki var samþykktur í bæjarráði nokkrum dögum síðar, 1. október 2026.

2. Vinna við hvaða framhaldsverkþætti, sem ekki voru samþykktir af stjórn Eignasjóðs sbr. gögnum og í fjárfestingaáætlun 2026, voru hafnir á grundvelli þeirrar heimildar og hver var áætluð fjárhæð þeirra verkþátta þegar heimildin var veitt?

Enga, enda var engin slík heimild veitt. Áætluð fjárhæð er því 0 kr.

3. Eru framkvæmdir í þessum tveimur verkefnum komnar að einhverju leyti lengra en gert var ráð fyrir í samþykktum verkþáttum í fjárfestingaáætlun 2026?

Engar framkvæmdir eru komnar lengra vegna ákvarðana sem teknar hafa verið eftir júní sl. Verkþættir sem ákveðnir voru fyrir þann tíma án framkvæmdaáætlunar, svo sem flutningur færanlegra kennslustofa af skólalóðum, eru komnir lengra.

Bókun minnihluta bæjarráðs vegna ofangreindra svara:

„Svör bæjarstjóra vegna 271 milljóna kr. umframkeyrslu fjárfestingaáætlunar Reykjanesbæjar eru skammarleg. Hér eru áhyggjur bæjarfulltrúa minnihlutans af verulegri umframkeyrslu svarað með háði og neitað enn og aftur einhverri ábyrgð á stýringu fjárfestinga sveitarfélagsins.

Hér var engin ákvörðun tekin og engin heimild veitt. Bæjarstjóri segir í skriflegu svari sínu að áætluð fjárhæð við verkþætti sem voru framkvæmdir en voru ekki í upphaflegri fjárfestingaáætlun ársins 2026, var 0 kr. Einnig fullyrðir bæjarstjóri að engar framkvæmdir séu komnar lengra vegna ákvarðana sem voru teknar eftir júní mánuð.

Þessar hálfskýringar eru varla svaraverðar en benda þarf þó íbúum Reykjanesbæjar á staðreyndir.

Í minnisblaði til bæjarráðs þann 1. október kemur fram að óskað sé eftir viðauka við fjárfestingaáætlun fyrir alls 445 milljónir. Þar af sé kostnaður sem þegar sé fallinn umfram fjárfestingáætlun ársins 271,8 milljónir.

Í bókun meirihluta umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 6. október kemur orðrétt fram að kostnaður hafi fallið til fyrr en fjárheimildir ársins gerðu ráð fyrir og dregst því frá eftirstöðvum verkefnanna.

Í minnisblaði til umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 13. október kemur fram að áætlun fjárfestinga ársins hafi verið 1,833 milljónir fyrir árið en raunstaðan sé 2,155 milljónir. Umframkeyrsla um 321,5 milljón eða 18% frávik frá áætlun.

Það er lágmark að bæjarstjóri segi íbúum okkar satt og rétt frá.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og Róbert Jóhann Guðmundsson (B).

2. Viðhald og framkvæmdir – staða mála (2025080340)

Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað um beiðni um viðbótarviðauka við fjárhagsáætlun Eignasjóðs 2026 – fjárfestingar og viðhald 75,7 m.kr.

Fundarhlé sett kl. 9:08. 

Fundur aftur settur kl. 9:29.

Bæjarráð samþykkir 3-2 beiðni um viðauka við fjárfestingu vegna Myllubakkaskóla að fjárhæð 30,5 milljónir. Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu og Róbert Jóhann Guðmundsson Framsókn greiða atkvæði á móti.

Bæjarráð samþykkur 5-0 beiðni um viðauka við fjárfestingu að fjárhæð 5,2 milljónir vegna Reykjaneshallar. Einnig viðauka við fjárhagsáætlun vegna tjóns í húsnæði Íþróttaakademíunnar að fjárhæð 3,0 milljónir.

Heildarupphæð viðaukans er samtals að fjárhæð 38,7 milljónir á móti hærri útsvarstekjum en gert var ráð fyrir og bókast á 31202-4620 á móti 00010-0020.

Bókun minnihluta bæjarráðs:

„Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar geta ekki samþykkt nýja beiðni um viðbótarviðauka vegna fjárfestinga og viðhalds Eignasjóðs, eins og lagt er upp með.

Ástæður fyrir því eru að það eru einungis 20 dagar síðan að síðasta beiðni um viðauka vegna umframkeyrslu fjárfestinga kom fram þar sem samþykkt var 170 milljóna kr. viðauka til að halda áfram fjárfestingum út árið. Það skýtur því skökku við og veldur okkur miklum áhyggjum, að hér sé verið að biðja um viðauka upp á 45,7 milljónir til viðbótar til fjárfestinga, aðeins tæpum þremur vikum síðar.

Umframkeyrsla fjárfestinga frá júní til október er 556 milljónir sem er tæplega 30% umframkeyrsla á fjórum mánuðum.

Skiptist það þannig:

•Framúrkeyrsla án viðauka alls 271,8 milljón, sem var í raun 347 milljónir en 75,1 milljónir voru teknar frá heimildum annarra verkefna ársins.

•Viðauki fyrir 170 milljónum í fjárfestingar

•Auka viðauki fyrir 35,7 milljónir í fjárfestingar

Upphafleg fjárfestingaáætlun var 1.850 milljónir en er orðin 2.403 milljónir eftir viðauka, verkefni utan viðauka og fjárheimildir frá öðrum verkefnum.

Þess utan hefur minnihluti bæjarstjórnar ekki fengið gögn er varða fjárhagsáætlun næsta árs og getum við því ekki tekið slíka afdrifaríka ákvörðun um fjármál sveitarfélagsins á þessum tíma án þess að vita betur raunstöðu okkar á næsta ári og stöðu fjárfestinga.

Undirrituð styðja nú sem áður uppbyggingu Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Það er þó óásættanlegt að bæjarráð sé aftur sett í þá stöðu að samþykkja viðbótarfjárheimildir fjárfestinga í sama mánuði.

Við ítrekum áhyggjur okkar af stöðu fjárfestinga.

Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar geta þó samþykkt viðauka við fjárfestingu fyrir nýjum ljósum í Reykjaneshöll að upphæð 5,2 milljónir þar sem um er að ræða öryggisatriði í húsinu. Eðlilegt er að bregðast við slíku ástandi.

Hvað varðar viðhald sérstaklega þá munum við samþykkja viðauka upp á þrjár milljónir í þegar skilgreint verkefni Íþróttaakademíunnar og förum fram á að þegar viðhald kemur til, þá sé bæjarráð upplýst um það sérstaklega og brugðist við. Það er eðlilegt að taka frá fjármagn í viðhald mannvirkja í stórum sveitarfélögum, enda gerðum við það með 436,4 milljónum fyrir árið, sem var 33% hækkun frá fyrra ári.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og Róbert Jóhann Guðmundsson (B).

3. Stefna og viðbragðsáætlun Reykjanesbæjar gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi – EKKO (2026100258)

Kristín Þórdís Þorgilsdóttir mannauðsstjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram drög að stefnu og viðbragðáætlun Reykjanesbæjar gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi – EKKO.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög 5-0 og vísar stefnunni til fyrri umræðu í bæjarstjórn 3. nóvember 2026.

4. Úrbótaáætlun barnaverndarþjónustu (2026030115)

Henný Úlfarsdóttir, ráðgjafi í barnaverndarþjónustu, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Kynnt staða úrbótaáætlunar.

5. Málefni Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja (2026090332)

Umræður um málefni Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri upplýsti um stöðu málefna heilbrigðiseftirlits.

6. Sólbrekka – beiðni um þróunarsamning (2026100267)

Lagt fram erindi frá Sólbrekku ehf. um þróunarsamning til 24 mánaða um landsvæði við og í kringum Seltjörn.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar í umhverfis- og framkvæmdaráði, íþrótta-, tómstunda- og menningarráði og skipulagsráði.

7. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja – söfnun fyrir brjóstaskimunartæki (2026100269)

Lögð fram beiðni um styrk vegna söfnunar á brjóstaskimunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Bæjarráð samþykkir 5-0 styrk að upphæð kr. 500.000, bókað á lykil 21-011-9220.

8. Samtök um karlaathvarf - ósk um stuðning (2026100253)

Lögð fram beiðni um styrk við starfsemi Samtaka um karlaathvarf.

Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni að svo stöddu þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun.

9. Umsögn vegna ökutækjaleigu/geymslustaðar ökutækja - Roam Tours ehf., Fuglavík 29 (2026100018)

Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.

10. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 8. október 2026 (2026010670)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

11. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 14. október 2026 (2026010317)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Bæjarráð Reykjanesbæjar. gerir kröfu um að Stofnun atvinnuveganna verði með starfstöð á Suðurnesjum og að svæðinu verði tryggð sambærileg nærþjónusta og öðrum landshlutum. Bæjarráðið felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að koma þessari kröfu á framfæri við atvinnuvegaráðuneytið og óska eftir skriflegum svörum um fyrirhugað fyrirkomulag þjónustu á Suðurnesjum.

Jafnframt tekur bæjarráð undir eftirfarandi bókun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum:

„Stjórn S.S.S. hvetur sveitarfélögin til að hraða viðræðum og ákvörðunum um næstu skref vegna fyrirhugaðra breytinga á heilbrigðiseftirliti, enda tekur nýtt fyrirkomulag gildi um næstu áramót. Mikilvægt er að skýra tímanlega verkaskiptingu, ábyrgð og framkvæmd þeirra verkefna sem verða áfram á forræði sveitarfélaganna.

Stjórnin fjallaði jafnframt um afrit af bréfi atvinnuvegaráðuneytisins til Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, dags. 12. október 2026. Í bréfinu kemur fram að Stofnun atvinnuveganna muni hafa starfstöðvar á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi. Suðurnes eru hins vegar ekki meðal þeirra landshluta þar sem gert er ráð fyrir starfstöð stofnunarinnar.

Stjórn S.S.S. lýsir yfir verulegum áhyggjum af þessari fyrirhuguðu tilhögun. Á Suðurnesjum eru alþjóðaflugvöllur, umfangsmikil matvælaframleiðsla og -dreifing, öflug ferðaþjónusta, hafnarstarfsemi og fjölmörg fyrirtæki sem falla undir eftirlit stofnunarinnar. Umfang og fjölbreytni atvinnustarfsemi á svæðinu kalla á staðbundna þjónustu og greiðan aðgang að sérfræðiþekkingu. Jafnframt er mikilvægt að varðveita og nýta þá þekkingu sem byggst hefur upp hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og tryggja áfram stuttar boðleiðir við fyrirtæki og sveitarfélög.

Stjórn S.S.S. gerir kröfu um að Stofnun atvinnuveganna verði með starfstöð á Suðurnesjum og að svæðinu verði tryggð sambærileg nærþjónusta og öðrum landshlutum. Stjórnin felur framkvæmdastjóra að koma þessari kröfu á framfæri við atvinnuvegaráðuneytið og óska eftir skriflegum svörum um fyrirhugað fyrirkomulag þjónustu á Suðurnesjum.“

12. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2026010648)

Frumvarp til fjárlaga, 1. mál

Bæjarráð samþykkir 5-0 að fela Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að koma umsögn bæjarráðs inn á samráðsgátt Alþingis.

Frumvarp til loftslagslaga, 202. mál

Umsagnarmál lögð fram.

Fundarhlé sett kl. 10:57

Fundur aftur settur kl. 11:03

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:07.