Beint í efni

1587. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 5. nóvember 2026 kl. 08.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Hjörtur Magnús Guðbjartsson varamaður, Kristján Pétur Kristjánsson aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Guðný Birna Guðmundsdóttir boðaði forföll, Hjörtur M. Guðbjartsson sat fyrir hana.

Dagskrá fundar

1. Vinna umbóta- og hagræðingarteymis (2026070070)

Fannar Jónasson ráðgjafi og Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Umræður um stöðu verkefna umbóta- og hagræðingateymis.

2. Fjárhagsáætlun og fjárreiður Reykjanesbæjar (2026070036)

Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs komu inn á fundinn undir málefni almenningssamgangna og jarðvegslosunarsvæðis.

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Magnþór Breki Ragnarsson verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda kom inn á fundinn undir málefni umhverfis- og framkvæmdasviðs – fjárfestingaráætlun 2027.

Lögð fram minnisblöð með tillögum að gjaldskrá fyrir almenningssamgöngur og móttökugjald á nýju jarðvegslosunarsvæði.

Bæjarráð samþykkir tillögur fyrir gjaldskrárbreytingar fyrir almenningssamgöngur sem taka á gildi 1. janúar 2027 og tillögur fyrir móttökugjaldi fyrir jarðvegslosunarsvæði sem taka á gildi 1.mars 2027.

3. Þjónustugjald vegna fráveitu - samningur við Isavia (2026110023)

Aron Heiðar Steinsson veitustjóri og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram drög að samningi milli Isavia ohf. og Reykjanesbæjar um þjónustugjald vegna móttöku og hreinsunar skólps frá öryggissvæði A á Keflavíkurflugvelli.

Bæjarráð samþykkir samninginn 5-0 og felur Guðlaugi H. Sigurjónssyni sviðsstóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að undirrita hann fyrir hönd Reykjanesbæjar.

4. Knattspyrnudeild U.M.F.N - umsókn um tækifærisleyfi (2026110040)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

5. Sameiginlegt átak um verðstöðugleika (2026110025)

Lagt fram.

6. Bílastæðasjóður Reykjanesbæjar - gjaldskrá (2026110047)

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs og Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað um gjaldskrá bílastæðasjóðs.

Stjórn bílastæðasjóðs samþykkir tillögur að gjaldskrá sem taka á gildi 1. janúar 2027.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:56.