Beint í efni

1588. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 12. nóvember 2026 kl. 08.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Hjörtur Magnús Guðbjartsson varamaður, Kristján Pétur Kristjánsson aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Guðný Birna Guðmundsdóttir boðaði forföll, Hjörtur M. Guðbjartsson sat fyrir hana.

Dagskrá fundar

1. Fjárhagsáætlun og fjárreiður Reykjanesbæjar (2026070036)

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2027.

2. Fasteignir og þróunarreitir í eigu Reykjanesbæjar (2026110196)

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram minnisblöð frá eignaumsýslu varðandi mögulega sölu fasteigna og gerð áhugakannana á þróunarreitum í eigu Reykjanesbæjar.

Bæjarráð felur bæjarlögmanni að vinna málið áfram í samvinnu við sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs í samræmi við umræður á fundinum og felur bæjarlögmanni að undirbúa drög að auglýsingum og leggja fyrir bæjarráð áður en þær fara í birtingu.

3. Snjallveita Reykjanesbæjar (2026080313)

Aron Heiðar Steinsson veitustjóri og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram erindi um stofnun Snjallveitu Reykjanesbæjar sem hefði ábyrgð á snjallinnviðum í götu- og almenningsrýmum sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir undirbúning að stofnun Snjallveitu Reykjanesbæjar undir umsjón veitustjóra. Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 2027.

4. Tímabundið úrræði við Njarðvíkurskóla (2026110197)

Lagt fram minnisblað varðandi tímabundið félagsmiðstöðvarstarf við Njarðvíkurskóla sem verði endurmetið í janúar 2027.

Bæjarráð samþykkir 5-0 fjárhæð 1.500.000,- til að styrkja félagsstarf í Njarðvíkurskóla tímabundið.

Fjárhæðinni verður mætt með viðauka við fjárhagsáætlun 2026 á Tómstundamiðstöð 06330-4990 á móti útsvarstekjum umfram áætlun 00010-0020.

5. Minningarreitur um brunann í Skildi – ósk um viljayfirlýsingu (2026110148)

Lagt fram erindi frá Hollvinasamtökum um minningarreitinn um brunann í Skildi þar sem óskað er eftir viljayfirlýsingu Reykjanesbæjar vegna afnota á svæði við minningarreitinn.

Bæjarráð fagnar erindinu og felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna.

6. Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja 21. maí og 29. október 2026 (2026030004)

Lagðar fram til kynningar fundargerðir svæðisskipulags Suðurnesja.

Óskað er eftir því að sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna tilnefni fulltrúa í sameiginlegan starfshóp um kortlagningu mögulegra svæða fyrir móttöku mengaðs jarðvegs á Suðurnesjum. Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi er tilnefndur fyrir hönd Reykjanesbæjar og sem varamaður Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála. Bæjarráð óskar eftir að báðir aðilar sem eru tilnefndir sitji fundi starfshópsins.

7. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 30. október 2026 (2026010670)

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

8. Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurnesja 2. og 5. nóvember 2026 (2026020138)

Lagðar fram til kynningar fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurnesja.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:22.