Beint í efni

1589. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 19. nóvember 2026 kl. 08.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Kristján Pétur Kristjánsson aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að aui sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Dagskrá fundar

1. Fjárhagsáætlun og fjárreiður Reykjanesbæjar (2026070036)

Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2027.

2. Árshlutauppgjör - 9 mánaða uppgjör (2026060082)

Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, og Rakel Lind Hauksdóttir forstöðumaður reikningshalds sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram drög að 9 mánaða árshlutauppgjöri fyrir tímabilið 1. janúar – 30. september 2026.

3. Fasteignir og þróunarreitir í eigu Reykjanesbæjar (2026110196)

Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður, Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað með drögum að skilmálum vegna mögulega sölu fasteigna og gerð áhugakannana á þróunarreitum í eigu Reykjanesbæjar.

Bæjarráð samþykkir 3-2 framlögð drög að auglýsingum sem eru númeraðar 1-7. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) greiða atkvæði á móti að auglýstar verði eignir 1, 3 og 7 en samþykkja gerð auglýsinga á eignum 2, 4, 5 og 6.

Bókun minnihluta bæjarráðs:

„Á síðasta fundi bæjarráðs samþykktum við að unnin yrðu drög að auglýsingum vegna fyrirhugaðrar sölu sjö eigna og lóða. Jafnframt gerðum við sérstakar athugasemdir við þrjár þeirra og óskuðum eftir að tilteknum spurningum yrði svarað til að geta tekið upplýsta ákvörðun um auglýsingu þeirra.

Við teljum að sala fasteigna sveitarfélagsins þurfi ávallt að byggja á skýrri þarfagreiningu og fjárhagslegum samanburði á þeim kostum sem standa til boða. Það á sérstaklega við þegar sala getur leitt til þess að starfsemi sveitarfélagsins þurfi í kjölfarið að flytja í annað húsnæði, byggja þurfi nýtt eða sveitarfélagið verði háð leiguhúsnæði hjá þriðja aðila til lengri tíma sem gæti þá haft í för með sér hærri kostnað fyrir samfélagið.

Við óskuðum meðal annars eftir upplýsingum um hvert núverandi starfsemi ætti að flytja, hvaða kostnaður fylgdi þeim flutningum og hvort hagkvæmara væri að nýta áfram eigið húsnæði undir lögbundna þjónustu.

Jafnframt bentum við á að gera þyrfti þarfagreiningu á því hvort ein af þessum fasteignum gæti verið á heppilegri staðsetningu fyrir lögbundna þjónustu en annað húsnæði sem verið er að nýta undir hana í sama hverfi enda var þáverandi kostnaðarmat vegna endurbóta á eignunum tveimur talið nokkuð svipað. 

Einnig teljum við nauðsynlegt að skoða hvort önnur fasteign sem stendur til að auglýsa geti nýst undir aðra lögbundna þjónustu svo sem velferðarþjónustu fyrir fötluð börn eða sem 120 barna leikskóla og þannig komið í veg fyrir kostnað við nýbyggingu eða langtímaleigu annars húsnæðis.

Við styðjum að aðrar eignir og lóðir sem ræddar voru verði auglýstar, með þeim fyrirvörum sem þegar hafa komið fram m.a. varðandi æfingasvæði og fullt samráð við íþróttahreyfinguna.

Þar sem þær upplýsingar og greiningar sem óskað var eftir liggja ekki fyrir getum við ekki samþykkt að umræddar þrjár eignir verði auglýstar til sölu að svo stöddu.

Við teljum sérstaklega mikilvægt að Reykjanesbær fari ekki þá leið að selja eignir sem nýtast eða geta nýst undir starfsemi sveitarfélagsins en þurfi síðan að byggja eða leigja sambærilegt húsnæði af einkaaðilum. Áður en slík ákvörðun er tekin þarf að liggja fyrir heildstætt kostnaðarmat sem sýnir með skýrum hætti að sala og eftir atvikum leiga eða uppbygging annars húsnæðis sé hagkvæmari til lengri tíma.

Það er að okkar mati ábyrg meðferð á almannafé að fá þau svör sem óskað var eftir áður en eignir eru settar á sölu. Að taka ákvarðanir áður en þær upplýsingar liggja fyrir er að okkar mati ekki skynsamlegt.“

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna GuðmundsdóttirSamfylkingu.

Bókun meirihluta bæjarráðs:

„Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks telur mikilvægt að Reykjanesbær sýni ábyrgð og ráðdeild í meðferð þeirra eigna og fjármuna sem sveitarfélaginu hefur verið treyst fyrir. Reykjanesbær á umtalsvert safn fasteigna og lóða sem sumar hverjar hafa lokið hlutverki sínu, standa ónotaðar eða henta ekki lengur undir þá starfsemi sem þeim var ætlað að hýsa. Aðrar kalla á verulegar fjárfestingar í viðhaldi og endurbótum á næstu árum.

Það er hvorki skynsamleg né ábyrg fjármálastjórn að halda slíkum eignum í eigu sveitarfélagsins. Þær tillögur sem nú eru lagðar fram byggja á því að farið verði yfir eignasafn bæjarins með gagnrýnum hætti og kannað hvort unnt sé að nýta einstakar eignir með hagkvæmari hætti. Þar má meðal annars nefna húsnæði sem stendur autt, færanlegar kennslustofur sem hafa þjónað tímabundnum tilgangi og fasteignir sem kalla á umfangsmiklar endurbætur eða í takt við sambærilegar hugmyndir sem voru kynntar á fundi stjórnar Eignasjóðs þann 30. nóvember 2025. Rétt er að árétta að með tillögunum er ekki verið að samþykkja sölu þessara eigna, heldur heimila að kannaðir verði möguleikar á sölu þeirra enda telur núverandi meirihluti það mikilvægt að kanna sölumöguleika samhliða öðrum kostum svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun um framtíð eignanna.

Öll tilboð og niðurstöður verða lögð fyrir bæjarráð áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Jafnframt verður að tryggja að möguleg sala fasteigna sem enn eru í notkun raski ekki þeirri þjónustu sem sveitarfélagið veitir. Meirihlutinn telur að eignir sveitarfélagsins eigi að vinna fyrir íbúana en ekki öfugt. Með skynsamlegri eignaumsýslu má draga úr framtíðarskuldbindingum, losa fjármagn og skapa svigrúm til að sinna þeim verkefnum sem skipta bæjarbúa mestu máli.“

Vilhjálmur Árnason, Margrét Þórarinsdóttir og Kristján Pétur Kristjánsson Sjálfstæðisflokki og Gunnlaugur Kárason Miðflokki.

4. Eignarhlutur í landi Höskuldarkots (2026090119)

Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Á fundi bæjarráðs 10. september sl. var lagt fram minnisblað þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins varðandi kaup á eignarhlut tiltekinna erfingja í landi Höskuldarkots.

Ekki er talið að fyrirhuguð kaup á eignarhlutum erfingja séu til þess fallin að breyta eignarstöðu sveitarfélagsins með verulegum hætti eða leiða til þess að sveitarfélagið öðlist meirihlutaeign í viðkomandi lóðum. Því er ekki talið að sérstakir hagsmunir sveitarfélagsins af kaupunum séu fyrir hendi, miðað við fyrirliggjandi upplýsingar.

Bæjarráð samþykkir 4-1 að hafna kaupum á eignarhlut í landi Höskuldarkots. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) greiðir atkvæði á móti.

Bókun Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur (B):

„Í tengslum við umfjöllun um fyrirhuguð kaup Reykjanesbæjar á landi vil ég ítreka mikilvægi þess að tillaga bæjarfulltrúa Framsóknar um mögulega stofnun lóðasjóðs Reykjanesbæjar fái þá efnislegu umfjöllun sem gert var ráð fyrir.

Tillagan var lögð fram undir þessu sama máli á 724. fundi bæjarstjórnar 15. september sl. og samþykkt að vísa henni til bæjarráðs til frekari umfjöllunar, en sú umfjöllun hefur enn ekki farið fram fyrir utan að starfsfólki var falið að vinna áfram í málinu.

Nú stendur yfir vinna við fjárhagsáætlun næsta árs og fyrri umræða um hana fer fram 1. desember nk. Í fyrirliggjandi ramma er ekki gert ráð fyrir fjármagni til að hefjast handa við að auka landaeign sveitarfélagsins með markvissum og sanngjörnum hætti.

Ég óska því eftir upplýsingum um hvenær tillagan um mögulega stofnun lóðasjóðs, þar á meðal útfærslu hans, markmið, fjármögnun og mótun verklags, verður tekin til efnislegrar umfjöllunar í bæjarráði.“

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsóknarflokki.

5. Fjárhagsaðstoð - breyting á grunnfjárhæð (2026110185)

Lagt fram minnisblað um hækkun grunnfjárhæðar fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2027 með vísan til 4. mgr. 11. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð.

Bæjarráð samþykkir 5-0.

6. Norræna félagið á Suðurnesjum - beiðni um styrk (2026100302)

Lögð fram beiðni um styrk fyrir árið 2027.

Bæjarráð hafnar beiðninni 5-0 en bendir á úthlutunarsjóði Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

7. Félag kvenna í atvinnulífinu - umsókn um tækifærisleyfi (2026110238)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

8. Umsögn vegna ökutækjaleigu/geymslustaðar ökutækja - Abíll ehf., Flugvöllum 16 (2026110123)

Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.

9. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 11. nóvember 2026 (2026010317)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

10. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2026010648)

Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031, 286. mál

Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027–2041, 313. mál

Umsagnarmál lögð fram.

Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að kalla eftir umsögnum frá þeim sviðsstjórum sem málefnin eiga við.

11. Málefni heilbrigðiseftirlits (2026090332)

Lagt fram minnisblað um yfirfærslu heilbrigðiseftirlits 1. janúar 2027 – eftirstandandi verkefni, valdheimildir, samþykktir og áhætta.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:43.