Beint í efni

1590. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 26. nóvember 2026 kl. 08.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Gunnlaugur Kárason formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Kristján Pétur Kristjánsson aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Dagskrá fundar

1. Fjárhagsáætlun og fjárreiður Reykjanesbæjar (2026070036)

Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Rakel Lind Hauksdóttir forstöðumaður reikningshalds sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram drög að árshlutareikningi Reykjanesbæjar fyrir tímabilið 1. janúar – 30. september 2026.

Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2027 - 2030.

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2027 til og með 2030 vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn 1. desember 2026.

2. Staða framkvæmda (2025080340)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu, Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Ítarleg kynning frá deildarstjóra eignaumsýslu á stöðu framkvæmda Eignasjóðs 2026.

3. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 · viðhald og fjárfesting (2025060320)

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu og Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram samantekt viðauka við fjárhagsáætlun 2026 – viðhald og fjárfesting.

Fundarhlé sett kl. 10:06

Fundur aftur settur kl. 10:21

Bæjarráð samþykkir 3-2 viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna viðhalds að fjárhæð kr. 20.800.000 á eignasjóð 31010-4620 sem mætt verður með hærri útsvarstekjum en ráð var gert fyrir 00010-0020. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) greiða atkvæði á móti.

Bæjarráð samþykkir 3-2 viðauka við fjárfestingaáætlun 2026 vegna framkvæmda í DUUS húsi að fjárhæð kr. 21.441.518 sem fjármagnað verður af handbæru fé vegna hærri útsvarstekna en áætlað var. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) greiða atkvæði á móti.

Bókun minnihluta bæjarráð:

„Fulltrúar Samfylkingar og Framsóknar geta því miður ekki samþykkt báða liði í heild sinni.

Varðandi fjárfestinguna er eðlilegast að taka hana inn á nýju ári enda er gert ráð fyrir henni í fjárfestingaráætlun 2027. Þess utan hefur sveitarfélagið þegar farið verulega fram úr í fjárfestingum ársins.

Við hefðum viljað samþykkja viðauka til viðhalds að hluta. Beiðni var lögð fram um viðauka fyrir sjö verkefni. Einu þeirra vildum við fresta fram yfir áramót því ekki var talin brýn þörf á því og hægt að leysa með öðrum og ódýrari hætti og öðru þeirra var þegar lokið.

Því lögðum við fram tillögu um að samþykkja hin verkefnin upp á kr.17.750.000. Fyrir okkar leyti samþykkjum við þá upphæð fyrir þau viðhaldsverkefni sem þar eru undir.“

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu.

4. Farsældarráð Suðurnesja (2025060040)

Lögð fram greinargerð um starf Farsældarráðs Suðurnesja 2025-2026.

Bæjarráð samþykkir 5-0 að endurnýja samstarfsyfirlýsingu Farsældarráðs Suðurnesja og felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirrita samstarfsyfirlýsinguna.

María Rós Skúladóttir og Arna Hrönn Aradóttir eru skipaðar í Farsældarráð Suðurnesja fyrir hönd velferðarsvið Reykjanesbæjar í stað starfsmanna sem hafa látið af störfum.

Bæjarráð fagnar þeirri vinnu sem hefur farið fram í Farsældarráði Suðurnesja og þakkar fyrir vel unnin störf.

5. Barnvænt sveitarfélag (2026110417)

Óskað er eftir tilnefningu í stýrihóp fyrir barnvænt sveitarfélag. Tilnefningar verða teknar fyrir á næsta bæjarráðsfundi.

Lagður er fram samstarfssamningur um barnvæn sveitarfélög. Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirrita samstarfssamning um barnvæn sveitarfélög fyrir hönd Reykjanesbæjar.

6. Almannavarnafulltrúi – drög að samkomulagi (2026110422)

Lögð fram drög að samkomulagi um sameiginlegan starfsmann í almannavörnum.

Bæjarráð samþykkir samkomulagið og felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirrita fyrir hönd Reykjanesbæjar.

7. Hluthafafundur Keilis 4. desember 2026 (2026110416)

Lagt fram fundarboð um hluthafafund Keilis, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs ehf.

Bæjarráð samþykkir að veita Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmanni umboð til að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.

8. Fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar 3. nóvember 2026 (2026040232)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar.

9. Fundargerð Almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur 9. nóvember 2026 (2026020271)

Lögð fram til kynningar fundargerð Almannavarnarnefndar Suðurnesja utan Grindavíkur.

10. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 13. nóvember 2026 (2026010670)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

11. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2026010648)
12. Stjórnarfundur Tjarnargötu 12 ehf. – staða framkvæmda (2026100178)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu, Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað um stöðu framkvæmda við Ráðhús Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 08:54.