Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

196. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 25. ágúst 2025 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Eva Stefánsdóttir- formaður nefndar, Hjördís Baldursdóttir- aðalmaður, Marta Sigurðardóttir- aðalmaður, Sindri Kristinn Ólafsson- aðalmaður, Valgerður Björk Pálsdóttir- aðalmaður

Að auki sátu fundinn Rúnar Vífill Arnarson formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar og Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sem jafnframt ritaði fundargerð.

Dagskrá fundar

1. Sundráð ÍRB 2025 - samningur um eflingu barnastarfs (2025080156)

Samningur um eflingu barnastarfs Sundráðs ÍRB lagður fram og samþykktur.

2. Fristundir.is (2025080282)

Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar sagði frá vinnu við að afla efnis vegna vetrarstarfs í íþróttum og tómstundum. Skil á auglýsingum þurfa að berast fyrir 1. september nk.

3. Ljósanótt 2025 - hvatning til þátttöku (2025080283)

Íþrótta- og tómstundaráð skorar á íþrótta- og tómstundafélög Reykjanesbæjar að vera með viðburði í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ.

4. Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja og svæða (2022050239)

Eva Stefánsdóttir formaður nefndar um uppbyggingu íþróttamannvirkja vestan Nettóhallar fór yfir stöðu verkefnisins. Tillögur stýrihóps verða lagðar fram til bæjarfulltrúa á næstu vikum til samþykktar.

5. Endurbætur á HS Orkuvelli og JBÓ velli (2025080284)

Íþrótta- og tómstundaráð fór yfir gögn er varðar nauðsynlegar umbætur á knattspyrnuvöllum félaganna. 

Ráðið tekur undir tillögur knattspyrnufélaganna og mikilvægi þess að ráðast þurfi í umbætur. Ráðið vísar erindinu til stjórnar eignasjóðs. 

6. Kynning frá Keflavík íþrótta- og ungmennafélagi (2025080281)

Birgir Már Bragason framkvæmdastjóri Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags mætti á fundinn og kynnti starfsemi félagsins.

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar fyrir metnaðarfulla kynningu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:17.