Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

197. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 23. september 2025 kl. 15.30.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Eva Stefánsdóttir- formaður nefndar, Hjördís Baldursdóttir- aðalmaður, Marta Sigurðardóttir- aðalmaður, Sindri Kristinn Ólafsson- aðalmaður, Valgerður Björk Pálsdóttir- aðalmaður

Að auki sátu fundinn Rúnar Vífill Arnarson formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs og Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sem ritaði fundargerð.

Dagskrá fundar

1. Hlýjan - lágþröskuldarþjónusta fyrir ungmenni (2025080515)

Þórdís Halla Jónsdóttir, Karítas Lára Rafnkelsdóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir mættu á fundinn og kynntu Hlýjuna, nýja lágþröskuldarþjónustu fyrir ungmenni.

Íþrótta og tómstundaráð fagnar framgangi verkefnisins Hlýjunnar sem miðar að því að styðja við ungmenni í Reykjanesbæ með lágþröskuldarþjónustu. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að veita ungmennum öruggt og aðgengilegt úrræði sem samræmist einu af stefnumarkmiðum Reykjanesbæjar, börnin mikilvægust. Að auki hafa fulltrúar ungmennaráðs Reykjanesbæjar kallað eftir þjónustu sem þessari.

2. Lýðheilsu- og forvarnarvika 29. september - 5. október 2025 (2025080392)

Íþrótta- og tómstundaráð minnir á Lýðheilsu- og forvarnarviku sem haldin verður í Reykjanesbæ 29. september til 3. október nk. Markmið vikunnar er að efla vitund um heilsueflingu og forvarnir meðal íbúa sveitarfélagsins. Margt verður í boði, m.a. frítt í Vatnaveröld, heilsufarsskoðun og heyrnarmælingar. Hægt er að kynna sér dagskrána á vefslóðinni https://visitreykjanesbaer.is/vidburdadagatal/heilsu-og-forvarnarvika/

3. Fjárhagsáætlun íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsumála 2026 (2025060203)

Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir drög að fjárhagsramma íþrótta- og tómstundamála og tímaáætlun fjárhagsáætlunarvinnu vegna ársins 2026, sem og þær beiðnir sem borist hafa fyrr á árinu.

4. Fristundir.is (2025080282)

Frístundavefurinn fristundir.is veitir yfirsýn yfir allt það fjölbreytta sem í boði er í Reykjanesbæ. Þar er einfalt að sía niðurstöður eftir aldri og staðsetningu, og því geta íbúar Reykjanesbæjar valið „Reykjanesbær“ til að sjá það sem er í boði í sveitarfélaginu.

Á vefnum má einnig finna hugmyndir að skemmtilegum stöðum fyrir útivist og samveru. Íbúar eru hvattir til að kynna sér úrvalið.

https://www.reykjanesbaer.is/is/moya/news/category/6/margt-og-mikid-i-bodi-i-vetur

5. Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja og -svæða (2022050239)

Eva Stefánsdóttir formaður íþrótta- og tómstundaráðs fór yfir stöðu verkefnisins.

6. Gervigrasvöllur - vetrarþjónusta (2025020117)

Íþrótta- og tómstundaráð leggur áherslu á að keypt verði tæki til að þjónusta útigervigrasvöllinn vestan Nettóhallar sem allra fyrst.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:00.