Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

198. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 21. október 2025 kl. 15.30.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Eva Stefánsdóttir- formaður nefndar, Hjördís Baldursdóttir- aðalmaður, Marta Sigurðardóttir- aðalmaður, Sindri Kristinn Ólafsson- aðalmaður, Valgerður Björk Pálsdóttir- aðalmaður

Að auki sátu fundinn Rúnar Vífill Arnarson formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar og Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sem jafnframt ritaði fundargerð.

Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs og Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs boðuðu forföll.

Valgerður Björk Pálsdóttir vék af fundi kl. 16.50.

Dagskrá fundar

1. Innleiðing farsældar barna í Reykjanesbæ (2025100224)

Eydís Rós Ármannsdóttir verkefnastjóri mætti á fundinn og kynnti stöðu innleiðingar farsældar barna hjá Reykjanesbæ.

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar fyrir greinargóða kynningu.

2. Lýðheilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar (2025080392)

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar íbúum, stofnunum og fyrirtækjum fyrir virka þátttöku í lýðheilsu- og forvarnarviku Reykjanesbæjar sem fram fór dagana 29. september - 5. október.

3. Flugmódelfélag Suðurnesja - beiðni um styrk (2025100194)

Flugmódelfélag Suðurnesja óskar eftir styrk vegna endurbóta á aðstöðu félagsins.

Íþrótta- og tómstundaráð vísar erindinu til umræðu um fjárhagsáætlun 2026.

4. Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja og -svæða í Reykjanesbæ (2022050239)

Eva Stefánsdóttir formaður stýrihóps gerði grein fyrir framvindu vinnu við uppbygginguna.

5. Fjárhagsáætlun íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsumála 2026 (2025060203)

Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir stöðuna á vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir málaflokk íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsumála árið 2026.

6. Æfingaaðstaða Massa, lyftingadeildar UMFN - endurbætur (2025100271)

Hámundur Örn Helgason framkvæmdastjóri UMFN og Hafsteinn Ingibergsson forstöðumaður íþróttamannvirkja mættu á fundinn og kynntu fyrirhugaðar framkvæmdir við endurbætur á æfingaaðstöðu Massa, lyftingadeildar UMFN í íþróttahúsinu í Njarðvíkurhverfi, Ljónagryfjunni. Þarfagreining ásamt teikningum og frumkostnaðarmati lögð fram.

Íþrótta- og tómstundaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til bæjarráðs.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:30.