Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

200. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 11. desember 2025 kl. 16.30.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Eva Stefánsdóttir- formaður nefndar, Hjördís Baldursdóttir- aðalmaður, Jóhann Gunnar Sigmarsson- aðalmaður, Marta Sigurðardóttir- aðalmaður, Sindri Kristinn Ólafsson- aðalmaður

Að auki sátu fundinn Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs og Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sem jafnframt ritaði fundargerð.

Forföll boðuðu Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Rúnar Vífill Arnarson formaður ÍRB.

Dagskrá fundar

1. Samningur um umsjón Nettóhallar (2025120021)

Samningurinn lagður fram og samþykktur.

2. Samningur við ÍRB - starfsárið 2026 (2025120037)

Samningurinn lagður fram og samþykktur.

3. Kynning á fjárfestingarverkefnum 2026 (2025110204)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kynntu áætlun um viðhald og rekstur fasteigna fyrir knattspyrnudeildir Keflavíkur og Njarðvíkur árið 2026. Farið var yfir kostnaðarskiptingu á milli mannvirkja og helstu verk sem þörf er á að framkvæma árið 2026 fyrir deildirnar.

4. Erindi ungmennaráðs til íþrótta- og tómstundaráðs (2025120022)

Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs fylgdi eftir tillögum ungmennaráðs Reykjanesbæjar.

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar kærlega fyrir kynninguna.

5. Staða félagsmiðstöðva í Reykjanesbæ og framtíðarsýn (2025120059)

Erindi frestað til næsta fundar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:41.