Dagskrá fundar
1. Staða félagsmiðstöðva í Reykjanesbæ og framtíðarsýn (2025120059)
Ólafur Bergur Ólafsson, verkefnastjóri Tómstundamiðstöðvar Reykjanesbæjar, mætti á fundinn og fór yfir framtíðarsýn og stöðu félagsmiðstöðva í Reykjanesbæ.
Íþrótta- og tómstundaráð þakkar fyrir góða kynningu.
2. Efling barna- og ungmennastarfs - Skýrsla Fimleikadeildar Keflavíkur (2026010226)
Skýrsla Fimleikadeildar Keflavíkur um eflingu barna- og ungmennastarfs lögð fram.
Íþrótta- og tómstundaráð þakkar fyrir greinargóða skýrslu.
3. Íþróttafólk ársins 2025 í Reykjanesbæ (2026010227)
Íþróttafólk Reykjanesbæjar og þau sem urðu heims- og Evrópumeistarar árið 2025 verða heiðruð.
Þriðjudaginn 20. janúar nk. fer fram hátíðleg athöfn í Stapa, Hljómahöll þar sem íþróttafólk Reykjanesbæjar 2025 verður heiðrað sem og heims- og Evrópumeistarar ársins.
4. Samstarfssamningur - Hestamannafélagið Máni (2026010228)
Samningurinn lagður fram og samþykktur.
5. Samstarfssamningur - Golfklúbbur Suðurnesja (2026010229)
Samningurinn lagður fram og samþykktur.
6. Upplýsingagjöf íþrótta- og tómstundafulltrúa (2025110206)
Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir ýmis mál er varðar málaflokkinn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:00.