Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

203. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 11. mars 2026 kl. 15.30.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Eva Stefánsdóttir- formaður nefndar, Hjördís Baldursdóttir- aðalmaður, Jóhann Gunnar Sigmarsson- aðalmaður, Magnús Einþór Áskelssoon varamaður, Sindri Kristinn Ólafsson- aðalmaður

Marta Sigurðardóttir boðaði forföll, Magnús Einþór Áskelsson sat fundinn í hennar stað.

Að auki sátu fundinn Rúnar Vífill Arnarson formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sem jafnframt ritaði fundargerð.

Dagskrá fundar

1. Farsæld barna - kynning (2023050248)

Eydís Rós Ármannsdóttir verkefnastjóri fjölmenningar kynnti stöðuna á innleiðingu verkferla í samræmi við lög um farsæld barna í Reykjanesbæ.

Íþrótta- og tómstundaráð samþykkir og þakkar Eydísi fyrir góða kynningu.

2. Íþróttafélagið Nes - kynning (2026030119)

Jóhann Jóhannsson formaður Íþróttafélagsins Nes kynnti starfsemi félagsins.

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar Jóhanni fyrir góða kynningu.

3. Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag - kynning fjármálastjóra (2026030120)

Guðbjörg Björnsdóttir, fjármálastjóri Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags og Birgir Már Bragason framkvæmdastjóri félagsins mættu á fundinn og gerðu grein fyrir fjármálum félagsins og því starfi sem þau eru að inna af hendi fyrir félagið.

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar Guðbjörgu og Birgi fyrir greinargóða kynningu.

4. Samningur um rekstur knattspyrnusvæða UMFN (2026030121)

Samningurinn lagður fram og samþykktur.

5. Samningur um rekstur knattspyrnusvæða Keflavíkur (2026030122)

Samningurinn lagður fram og samþykktur.

6. Færanlegar kennslustofur (2025030099)

Minnisblað lagt fram varðandi nýtingu á færanlegri skólastofu. 

Íþrótta- og tómstundaráð leggur afar mikla áherslu á að færanleg skólastofa sem er að losna verði sett á svæðið vestan Nettóhallar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:30.