Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

204. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 21. apríl 2026 kl. 16.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Eva Stefánsdóttir- formaður nefndar, Hjördís Baldursdóttir- aðalmaður, Jóhann Gunnar Sigmarsson- aðalmaður, Magnús Einþór Áskelssoon varamaður, Marta Sigurðardóttir- aðalmaður

Að auki sátu fundinn Rúnar Vífill Arnarson formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sem jafnframt ritaði fundargerð.

Dagskrá fundar

1. Aðstöðuleysi knattspyrnunnar í Reykjanesbæ (2026040070)

Sólrún Sigvaldadóttir, Ragnar Aron Ragnarsson og Birgir Már Bragason fóru yfir aðstöðuleysi knattspyrnunnar í Reykjanesbæ.

Íþrótta- og tómstundaráð tekur undir áhyggjur þeirra og telur nauðsynlegt að bæta þurfi strax aðstöðuna í Reykjanesbæ.

2. Þátttökutölur barna í íþróttum í Reykjanesbæ 2025 (2026040069)

Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir mælaborð varðandi þátttöku barna í íþróttum í Reykjanesbæ.

Helstu tölur:

•Árið 2024 iðkuðu 4.493 börn íþrótt eða tómstund og árið 2025 voru þau 4.723. Samsvarar það 5,1% hækkun á milli ára.

•Hlutfall barna sem stunduðu íþrótt eða tómstund hækkaði úr 61,0% árið 2024 í 63,9% árið 2025.

•Hlutfall barna með íslenskt ríkisfang hækkaði úr 67,1% árið 2024 í 72,4% árið 2025.

•Hlutfall barna með erlent ríkisfang lækkaði úr 35,9% árið 2024 í 34% árið 2025. Iðkendum fjölgaði milli ára en fjölgunin var hlutfallslega minni en hlutfallsleg fjölgun barna með erlent ríkisfang í Reykjanesbæ.

•Hlutfall drengja hækkaði úr 61,9% árið 2024 í 66,2% árið 2025 

•Hlutfall stúlkna hækkaði úr 60,1% árið 2024 í 61,7% árið 2025.

Mælaborðið er hægt að skoða hér: https://www.reykjanesbaer.is/is/thjonusta/ithrottir-tomstundir/thatttokutolur-barna-og-ungmenna

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar hagdeild Reykjanesbæjar fyrir vinnu við mælaborðið.

3. Færanlegar kennslustofur (2025010051)

Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness óskar eftir svítu. Erindið var áður á dagskrá íþrótta- og tómstundaráðs á 190. og 193. fundum ráðsins, var því þá vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2026.

Íþrótta- og tómstundaráð tekur undir að aðstöðu Vélhjólaíþróttafélags Reykjaness sé ábótavant og felur Hreini Ágústi Kristinssyni deildarstjóra Eignaumsýslu að kanna birgðastöðu á svítum sveitarfélagsins. 

Íþrótta- og tómstundaráð minnir á að Íslandsmótið í Motocross fer fram í sumar í Reykjanesbæ.

4. Þjónustusamningur við Skátafélagið Heiðabúa 2026 (2026040072)

Samningurinn lagður fram og samþykktur.

5. Viðhaldsáætlun Knattspyrnudeildar Keflavíkur 2026 (2026040071)

Viðhaldsáætlun Knattspyrnudeildar Keflavíkur lögð fram.

6. Viðhaldsáætlun Knattspyrnudeildar UMFN 2026 (2026040140)

Viðhaldsáætlun Knattspyrnudeildar UMFN lögð fram.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:36.