Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

205. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 12. maí 2026 kl. 15.30.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Eva Stefánsdóttir- formaður nefndar, Hjördís Baldursdóttir- aðalmaður, Jóhann Gunnar Sigmarsson- aðalmaður, Magnús Einþór Áskelssoon aðalmaður, Marta Sigurðardóttir- aðalmaður

Að auki sátu fundinn Rúnar Vífill Arnarson formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sem jafnframt ritaði fundargerð.

Dagskrá fundar

1. Niðurstöður könnunar og kynning á starfi svæðisfulltrúa (2026040361)

Petra Ruth Rúnarsdóttir og Sigurður Friðrik Gunnarsson, svæðisfulltrúar íþróttahéraða á Suðurnesjum, kynntu niðurstöður á þátttöku barna í íþróttum og tómstundum sem og störf þeirra sem svæðisfulltrúa. 

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar fyrir greinargóða kynningu.

2. Smíðavallasamningur við Skátafélagið Heiðabúa (2026040364)

Samningurinn lagður fram og samþykktur.

3. Samningur við KFUM og KFUK um framkvæmd æskulýðsstarfs 2026 (2026050031)

Samningurinn lagður fram og samþykktur.

4. Samningur um rekstur púttvalla við Mánaflöt (2026050038)

Samningurinn lagður fram og samþykktur.

5. Endurskoðuð íþróttastefna til 2030 (2026050040)

Íþróttastefna Reykjanesbæjar lögð fram til kynningar.

6. Kynning á íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsumálum í Reykjanesbæ (2026050090)

Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir skipulag íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsumála í Reykjanesbæ.

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar fyrir greinargóða kynningu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:40.