Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

206. fundur íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 23. júní 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Birgir Már Bragason aðalmaður, Bjarni Gunnólfsson aðalmaður, Guðlaug Sunna Gunnarsdóttir aðalmaður, Guðmundur Steinarsson aðalmaður, Hámundur Örn Helgason aðalmaður

Að auki sátu fundinn Rúnar Vífill Arnarson formaður ÍRB, Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Frosti Kjartan Rúnarsson áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs boðaði forföll.

Dagskrá fundar

1. Skipting embætta í íþrótta-, tómstunda- og menningarráði (2026060289)

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 16. júní 2026 voru eftirtaldir kjörnir aðal- og varafulltrúar í íþrótta-, tómstunda- og menningarráði kjörtímabilið 2026-2030:

Aðalfulltrúar: Sunna Gunnarsdóttir (D), Hámundur Örn Helgason (S), Birgir Már Bragason (B), Bjarni Gunnólfsson (M), Guðmundur Steinarsson (D).

Varafulltrúar: Logi Þór Ágústsson (D), Ragnar Már Ragnarsson (D), Rúnar Fossádal Árnason (M), Yasmin Petra Younesdóttir (B) og Magnús Einþór Áskelsson (S)

Bæjarstjórn kaus Sunnu Gunnarsdóttur sem formann íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð kaus í eftirtalin embætti:

Bjarni Gunnólfsson var kjörinn varaformaður íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs.

Guðmundur Steinarsson var kjörinn ritari íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs.

2. Ljósanótt 2026 (2026060286)

Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi mætti á fundinn og sagði frá vinnu við undirbúning Ljósanætur 2026 sem haldin verður 3.-6. september 2026. Dagskráin mun verða kynnt á vef Ljósanætur, ljosanott.is, er nær dregur.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð þakkar fyrir greinargóða kynningu.

3. 17. júní 2026 (2026060293)

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð vill koma á framfæri kærum þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd á plóginn við skipulagningu og framkvæmd hátíðarhalda á þjóðhátíðardaginn 17. júní í Reykjanesbæ.

Viðburðir sem þessir skipta miklu máli fyrir samfélagið okkar. Þeir efla samkennd, styrkja menningarlíf bæjarins og skapa jákvæðar minningar fyrir íbúa á öllum aldri. Það er markmið okkar að halda áfram að efla slíka viðburði á komandi árum og byggja enn frekar undir öflugt og lifandi samfélag.

4. Siðareglur kjörinna fulltrúa (2026050308)

Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ lagðar fram til kynningar. Kjörnum fulltrúum ber að tileinka sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi. Kjörnir fulltrúar munu undirrita siðareglurnar því til staðfestingar.

5. Kynning á íþrótta- og tómstundamálum Reykjanesbæjar (2026060291)

Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti starfsemi íþrótta- og tómstundamála í Reykjanesbæ. 

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð þakkar fyrir kynninguna og óskar eftir að sams konar kynning á menningarmálum verði flutt á næsta fundi ráðsins.

6. Upplýsingagjöf íþrótta- og tómstundafulltrúa (2025110206)

Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi málaflokksins.

7. Fundargerð Samtakahópsins (2026020246)

Fundargerð Samtakahópsins frá 20. maí 2026 lögð fram.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:49.