Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

208. fundur íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 24. september 2026 kl. 14.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Birgir Már Bragason aðalmaður, Bjarni Gunnólfsson aðalmaður, Guðlaug Sunna Gunnarsdóttir formaður nefndar, Guðmundur Steinarsson aðalmaður, Hámundur Örn Helgason aðalmaður

Að auki sátu fundinn Rúnar Vífill Arnarson, Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi og Erna María Svavarsdóttir ritari.

Dagskrá fundar

1. Vinnuskóli Reykjanesbæjar - uppgjör á sumrinu 2026

Gunnhildur Gunnarsdóttir forstöðumaður Tómstundamiðstöðvarinnar og Þórunn Friðriksdóttir forstöðumaður Vinnuskólans kynntu starfsemi Vinnuskólans sumarið 2026 og fóru yfir uppgjör verkefnisins Sumarstörf ungs fólks.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð Reykjanesbæjar þakkar fyrir greinargóða kynningu og óskar stjórnendum og starfsfólki Vinnuskólans til hamingju með vel heppnað starf sumarið 2026.

2. Fimleikadeild Keflavíkur - kynning á starfsemi og beiðni um kaup á búnaði

Unnur Ýr Kristinsdóttir og Berglind Ragnarsdóttir kynntu starfsemi Fimleikadeildar Keflavíkur og erindi sem fylgja þarf eftir í fjárhagsáætlun 2027.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð þakkar fyrir greinargóða kynningu.

3. Erindisbréf íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs

Drög að erindisbréfi íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs lögð fram.

Erindisbréf lagt fram og samþykkt með minniháttar breytingum.

4. Heilsuvika í Reykjanesbæ 5. - 11. október 2026

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð minnir á heilsuviku Reykjanesbæjar sem haldin verður dagana 5.-11. október 2026. Markmið vikunnar er að efla vitund um heilsueflingu íbúa sveitarfélagsins.

5. Fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundamála 2027

Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir vinnu við fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundamála fyrir árið 2027. Við gerð fjárhagsáætlunar er unnið samkvæmt hugmyndafræði núllgrunnsáætlunargerðar.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að aukið fjármagn verði tryggt til málaflokksins í fjárhagsáætlun ársins 2027.

6. Skipan stýrihóps um framtíð íþrótta- og tómstundamála í Reykjanesbæ

Lagt fram minnisblað um skipan nýs stýrihóps um framtíð íþrótta- og tómstundamála.

7. Listasafn Reykjanesbæjar - ný sýning í bíósal (2026080181)
7. Þakkir fyrir Ljósanótt 2026

Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð Reykjanesbæjar vill að lokinni vel heppnaðri Ljósanótt færa þakkir öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar; ekki síst starfsfólki Reykjanesbæjar, viðbragðsaðilum, listafólki, félagasamtökum og fyrirtækjum. Ráðið þakkar einnig íbúum og gestum sem nutu hátíðarinnar og tóku þátt í dagskrá hennar. Loks færir ráðið sérstakar þakkir öllum þeim styrktaraðilum sem lögðu sitt af mörkum til að hátíðin gæti orðið jafn glæsileg og raun bar vitni. Sá stuðningur er til vitnis um þá samfélagslegu ábyrgð sem fyrirtækin sýna í verki með það að markmiði að styðja við samfélagið þar sem starfsfólk þeirra býr og starfar.

8. Safnahelgi á Suðurnesjum

Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð vekur athygli á að Safnahelgi á Suðurnesjum fer fram dagana 17.-18. október og hvetur íbúa til að njóta dagskrár helgarinnar sem er öllum að kostnaðarlausu. Safnahelgi er samstarfsverkefni safna, setra og sýninga á Suðurnesjum sem opna dyrnar sínar fyrir íbúum og gestum svæðisins. Upplýsingar er að finna á safnahelgi.is

9. Menningarverðlaunin 2026

Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð felur menningarfulltrúa að auglýsa eftir tillögum að verðugum handhafa Súlunnar 2026, menningarverðlauna Reykjanesbæjar.

10. Haustdagskrá í Reykjanesbæ

Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs, fór yfir dagskrá haustsins og það fjölbreytta starf sem fram undan er á vegum menningarstofnanna sveitarfélagsins.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð hvetur íbúa til að fylgjast vel með því fjölbreytta starfi, viðburðum og dagskrá sem boðið er upp á á vegum Reykjanesbæjar og taka virkan þátt. Upplýsingar um viðburði má finna á visitreykjanesbaer.is og á nýju viðburðadagatali á heimasíðu Reykjanesbæjar sem fer í loftið 1. október.

11. Fjárhagsáætlun menningar- og þjónustusviðs 2027

Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs, fór yfir stöðuna á fjárhagsáætlunarvinnu sviðsins fyrir komandi ár.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:20.